Markús Örn skipaður forstöðumaður Þjóðmenningarhúss

Þjóðmenningarhúsið.
Þjóðmenningarhúsið. Árvakur/Kristinn

Forsætisráðherra hefur veitt Guðríði Sigurðardóttur lausn frá embætti forstöðumanns Þjóðmenningarhússins frá 1. maí nk. að eigin ósk. Þá hefur forsætisráðherra flutt Markús Örn Antonsson úr starfi sendiherra í Kanada með samþykki utanríkisráðuneytisins og skipað hann í embætti forstöðumanns Þjóðmenningarhúss frá og með 1. september.

Guðrún Garðarsdóttir, skrifstofustjóri og staðgengill forstöðumanns, mun gegna starfi forstöðumanns til 1. september nk.

Markús Örn hefur starfað sem sendiherra Íslands í Kanada frá 1. september 2005. Hann var útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins 1985-1991 og svo aftur 1998-2005, borgarstjóri í Reykjavík 1991-1994, borgarfulltrúi í Reykjavík 1970-1985, ritstjóri tímaritsins Frjáls verzlun og fleiri tímarita hjá útgáfufélaginu Frjálst framtak hf. 1972-1983 og fréttamaður og dagskrárgerðarmaður við Sjónvarpið í árdaga þess.

Markús Örn Antonsson er kvæntur Steinunni Ármannsdóttur fv. skólastjóra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert