Samið um hvíldarinnlagnir fyrir aldraða

Skrifað undir samninginn í dag. stækka

Skrifað undir samninginn í dag. Árvakur/Kristinn

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, skrifaði í dag undir samning við forsvarsmenn Heilsuverndarstöðvarinnar ehf. um dvalarrými- og hvíldarinnlagnir fyrir aldraða. Um er að ræða 20 skammtíma hvíldarrým fyrir aldraða skjólstæðinga heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu og 30 dagvistarrýma þar sem áhersla verður lögð á endurhæfingu.

Þetta er tilraunaverkefni til sex mánaða og er gert ráð fyrir því að starfsemin hefjist í húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg í marsbyrjun. Á samnignstímanum verður unnið að útboði á grundvelli þeirra upplýsinga sem fást af verkefninu.

Þjónustan sem Heilsuverndarstöðin ehf. veitir samkvæmt samningnum er ætluð skjólstæðingum heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu. Rétt til vistunar eiga aldraðir einstaklingar sem að mati heimahjúkrunar þurfa tímabundna vistun vegan dægurvillu, til að hvíla umönnunaraðila, vegna skyndilegra veikinda eða ef sá sem annast viðkomandi forfallast skyndilega.

Boðið verður upp á skammtíma vistun og er áhersla lögð á endurhæfingu. Hugsunin er sú að með því að leggja áherslu á endurhæfinguna sérstaklega er komið til móts við þá eindregnu ósk aldraðra að eiga þess kost að búa heima hjá sér eins lengi og kostur er.

Boðið verður upp á sveigjanlegan vistunarmöguleika í hvíldarrýmum með vistun frá einum sólarhing í allt að fjórar vikur. Stuðningur við einstaklinginn skal samkvæmt samningnum miðast við að viðhalda getu viðkomandi og virkni eins og kostur er. Áhersla er lögð á að veita þjónustu á forsendum einstaklingsins með hans eigin þátttöku, og að veita hjúkrun, aðhlynningu, þjálfun, læknishjálp og hjálpartæki á hans eigin forsendum til þess að auðvelda viðkomandi að takast á við breyttar aðstæður dagslegs lífs.

Þjónusta dagdvalar er einstaklingsmiðuð og er gengið út frá að einstaklingar fái að vera í dagdvöl með endurhæfingu í tiltekinn tíma og að hámarki 8 vikur. Þjónusta fyrir dagdvöl með endurhæfingu verður opin frá kl. 8-19. Þannig verður einstaklingum boðið upp á að hefja dagdvöl árla morguns og fram undir hádegi. Þeim sem fara heim um kl. 19 verður boðið upp á að snæða kvöldverð og að taka lyf sín áður en dagdvöl lýkur. Heimilt verður að hafa opið um helgar. Um nýmæli er að ræða í opnunartíma dagdvalar.

Þjónustan var boðin út á vegum Ríkiskaupa sem þróunarverkefni. Eitt tilboð barst í þjónustuna frá Heilsuverndarstöðinni ehf. og var í framhaldinu gengið til samninga við Heilsuverndarstöðina ehf sem útvegar húsnæði fyrir starfsemina ásamt öllum nauðsynlegum innréttingum og búnaði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »
Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.

Bátur fauk á annan bát

17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fellihýsi til sölu
Palomino fellihýsi árg 2006. Fortjald fylgir. Upplýsingar í síma 8927619. frimol...
SUMARHÚS GESTAHÚS
Sumarhús - Gestahús - Breytingar O  Framleiðum stórgl...
Íbúð óskast sem næst Lyngby - Kaupmannahöfn
Erum ungt bar með lítið barn og bráðvantar íbúð til leigu. Erum að fara í DTU sk...
HREINSISPREY
Kristals-hreinsisprey Hreinsisprey fyrir kristalsljósakrónur og kr...
 
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...