Sérfræðiþekking ekki í mínútum og sekúndum
Gjörbylta þarf þeim forsendum sem liggja að baki kjarasamningum kennara og hætta að meta sérfræðiþekkingu þeirra í mínútum og sekúndum, sagði Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, á Alþingi í gær. „Kennarastéttin á að vera vel launuð og það á að meta sérfræðimenntun hennar til jafns á við sérfræðimenntun annarra stétta í landinu,“ sagði Ragnheiður og áréttaði jafnframt að til stæði að lengja kennaramenntun og það kallaði að sjálfsögðu á launabreytingar.
Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gerði kjör kennara að umtalsefni og vildi heyra hver stefna Samfylkingarinnar væri í þeim efnum. „Í stefnuskrá Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar sagði m.a. að það ætti að bæta launakjör hefðbundinna kvennastétta,“ sagði Valgerður og spurði hvað flokkurinn hygðist gera nú þegar hann væri í ríkisstjórn.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði það bjargfasta skoðun sína að gera þyrfti betur við kennara. Í stjórnarsáttmálanum væri skýrt kveðið á um að endurmeta þyrfti kjör kvenna sem starfa hjá hinu opinbera. „Ég hef lengi kallað eftir meiri og fleiri peningum í menntakerfið,“ sagði Ágúst.
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, varaði hins vegar við því að ráðherrar og þingmenn stjórnarflokkanna færu í kapphlaup um að tilgreina stéttir sem ættu að fá meiri laun en aðrar. „Verkalýðshreyfingin ræður ekki við það í sínum röðum að gera kjarasamninga sem taka ákveðnar stéttir út úr og færa þeim meiri kauphækkanir,“ sagði Kristinn og bætti við að það ættu allir að vita.
Bloggað um fréttina
-
Helga Dögg Sverrisdóttir Auðveldara um að tala en í að komast -
Guðrún Emilía Guðnadóttir Af hverju er þá ekki gert betur?
Innlent »
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 25. janúar 2009, Innlent Vonast eftir að Davíð verði látinn víkja
- Sunnudagur, 20. maí 2007, Innlent Árni og Björn færast niður um eitt sæti
- Föstudagur, 13. mars 2009, Innlent Þingkonur mótmæla karlanefnd
- Miðvikudagur, 14. febrúar 2007, Innlent Ríkisstjórn hvött til að beita sér í kennaradeilu
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2008, Innlent Stóðu vakt fyrir fjármálaöflin
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































