Þrettán greindust með HIV smit á síðasta ári
Þrettán greindust með HIV veiruna hér á landi á síðasta ári en sú veira veldur alnæmi. Reuters
Þrettán einstaklingar greindust með með HIV-smit hér á landi á síðasta ári. Líklegt var talið að smit tengdist fíkniefnaneyslu í æð í sex tilfellum. Í fjórum tilfellum var smit talið tengjast kynmökum gagnkynhneigðra og í þremur tilvikum kynmökum samkynhneigðra.
Fram kemur í Farsóttafréttum landlæknisembættisins, að af þeim sem greindust á árinu voru sjö konur en þetta er í fyrsta sinn sem fleiri konur greinast með HIV-smit en karlar á Íslandi.
Óvenju mörg HIV-tilfelli tengdust fíkniefnaneyslu og voru líkur leiddar að því að um hópsýkingu gæti verið að ræða. Veirufræðideild Landspítalans hefur unnið að samanburði HIV-stofna sem greindust á árinu 2007. Niðurstöður þessara rannsókna sýna að einungis tveir einstaklingar, sem sprautuðu sig reyndust vera með sama veirustofn. Þessar niðurstöður benda því til þess, að ekki hafi verið um eiginlega hópsýkingu að ræða meðal fíkniefnaneytenda á árinu 2007.Áfram verður fylgst náið með útbreiðslu HIV-smits meðal fíkniefnaneytenda. Segir landlæknisembættið að nái HIV-smit fótfestu í þessum áhættuhópi megi búast við stóraukinni útbreiðslu sjúkdómsins hér á landi.
Margir greindust með lifrarbólgu B
Óvenju margir greindust með lifrarbólgu B á síðasta ári eða 45 manns. Um helmingur þeirra voru innflytjendur og vitað var um átta sem höfðu sprautað sig með fíkniefnum. Síðast gekk yfir faraldur meðal fíkniefnaneytenda á árunum 1989–1991.
Embættið segir mikilvægt, að bjóða fíkniefnaneytendum, sem ekki hafa smitast af lifrarbólgu B, bólusetningu gegn sjúkdómnum til að koma í veg fyrir nýjan faraldur í þessum hópi.
Bloggað um fréttina
-
Lilja G. Bolladóttir Hvenær ætla stjórnvöld að opna augun fyrir þessum vanda?
Innlent »
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 19. febrúar 2008, Innlent 13 greindust með HIV
- Föstudagur, 16. nóvember 2007, Innlent Flestir þeirra sem smitast af lifrarbólgu B neyta fíkniefna
- Miðvikudagur, 19. september 2007, Innlent Óttast að HIV-hópsýking sé í uppsiglingu meðal fíkniefnaneytenda
- Föstudagur, 13. febrúar 2009, Innlent Enginn greindist með alnæmi á árinu 2008
- Fimmtudagur, 5. júlí 2007, Innlent Ellefu greindust með HIV-smit á síðasta ári
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































