Geir: Mjög ábyrgir samningar
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að kjarasamningarnir, sem skrifað var undir á sunnudagskvöld, væru mjög ábyrgir. Hins vegar væri ljóst að þeir kæmu mismunandi niður í atvinnulífinu eftir atvinnugreinum og fyrirtækjum og verði þyngri fyrir þau fyrirtæki, sem hafa vikið í meiri mæli frá kauptöxtum á síðustu misserum.
Þá væri ljóst, að samningarnir gætu komið þyngra niður á fyrirtækjum á landsbyggðinni þar sem launaskriðs hefði lítið gætt. Geir sagði, að vinnuveitendur gerðu sér grein fyrir þessu líka og teldu, að þrátt fyrir þetta væru þessir samningar meira en réttlætanlegir út frá þeirra sjónarmiðum.
Geir gerði Alþingi grein fyrir þeim aðgerðum, sem ríkisstjórnin hefði gripið til í tengslum við kjarasamningana og standa nú yfir umræður um málið.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sagði að samningarnir væru góðra gjalda verðir, svo langt sem þeir næðu, en það væri því miður allt of skammt og samið hefði verið um mjög lág laun. Lægstu laun væru samkvæmt þeim aðeins rúmar 137 þúsund krónur á mánuði.
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagðist fagna kjarasamningunum og þeirri stefnu, sem þar var mótuð, að hækka lægstu launin. Bætti Guðni við, að með þeim hefði verið stigið skref sem framsóknarmenn hefðu vonast til að yrði stigið árum saman þótt laun væru enn allt of lág á Íslandi. Ríkisstjórnin hefði hins vegar ekki tekist á við það, sem mestu máli skipti: verðbólguna. Sagðist Guðni ekki ætla að sitja á neinum friðarstóli gagnvart stjórninni í þeim efnum.
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði að lægstu taxtar og lægstu bætur almannatrygginga dugi ekki fyrir framfærslu. Það markmið hefði ekki náðst við gerð kjarasamninga, að koma þeim sem fá lægstu launin upp fyrir fátæktarmörk. Hann benti á, að rauntekjuaukning þeirra, sem fá 18.000 króna hækkun, sé niðurstaðan sú, að launþeginn haldi eftir 10 þúsund krónum þegar skattar og önnur gjöld hafa verið dregin frá. Sérstakur persónuafsláttur fyrir láglaunafólk hefði skilað þeim hópi mun meiri rauntekjuaukningu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sagði að sumir þingmenn hefðu valið sér það hlutskipti, að plokka alltaf út súru berin og vísaði til Steingríms J. Sigfússonar í því samhengi. Ingibjörg Sólrún sagði, að kjarasamningarnir fælu í sér meiri jöfnuð en sést hefði áður í slíkum samningnum og mörkuðu því tímamót. Ríkisstjórnin væri með yfirlýsingu sinni, að gera mest fyrir þá sem lægt hafa launin og jafnframt, að bæta stöðu barnafjölskyldna.
Bloggað um fréttina
-
Heimir L Fjeldsted Talsmenn Vinstri grænna setja ofan. -
Katrín Ósk Adamsdóttir Er þetta nóg ? -
Björgvin Guðmundsson Alþingi:Launþeginn heldur aðeins 10 þús. kr. eftir af 18 þús. ...
Innlent »
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 28. apríl 2008, Innlent Telur að ríkisstjórnin eigi að segja af sér
- Föstudagur, 23. maí 2008, Innlent Ágreiningur um hvalveiðar lítið mál
- Fimmtudagur, 21. febrúar 2008, Innlent Gerbreyttar aðstæður víða
- Þriðjudagur, 7. október 2008, Innlent Guðni og Pútín
- Laugardagur, 16. febrúar 2008, Innlent Ríkisstjórnin lofar að bregðast hratt við
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur





































