„Stimpilgjöld á að afnema“
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar varðandi kjarasamningana eru húsnæðismál veigamikill þáttur. Bæði er fjallað um breytingar á almennum leigumarkaði og í félagslega kerfinu. Jafnframt eru tiltekin atriði til þess fallin að létta ungu fólki kaup á sinni fyrstu fasteign. Meðal þess sem þar kemur fram er loforð um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að stimpilgjöld verði felld niður vegna lána til kaupa á fyrstu fasteign. Þá verði skerðingarmörk vaxtabóta hækkuð og komið á nýju húsnæðissparnaðarkerfi með skattafrádrætti fyrir fólk undir 35 ára aldri.
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir það vonbrigði hversu skammt er gengið í afnámi á stimpilgjöldum. „Það er afskaplega skammt gengið að ætla aðeins að afnema stimpilgjöld af kaupum á fyrstu íbúð. Það er í engu samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um afnám stimpilgjalda. Ég fagna því auðvitað að ungt fólk fái þessi gjöld afnumin, ekki veitir af því en ég hefði hins vegar viljað sjá þau afnumin að fullu. Ég varð fyrir vonbrigðum með þessa ákvörðun.“
Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, segir þau atriði sem snúa að húsnæðismálum í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vera þunnan þrettánda. „Mér finnst þetta vera mjög almennt orðað. Hvað varðar stimpilgjöldin þá er vissulega mjög gott að þau skuli afnumin af kaupum á fyrstu íbúð, það léttir mjög á ungu fólki sem er að koma undir sig fótunum. Hins vegar eru það mikil vonbrigði að þessi gjöld skuli ekki afnumin með öllu því þessi gjaldtaka kemur illa niður á miklu fleirum en bara þeim sem eru að kaupa í fyrsta skipti.“
Innlent »
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 20. febrúar 2008, Innlent Hættulegt að hætta að stimpla?
- Fimmtudagur, 21. febrúar 2008, Innlent Rót virðist komið á fasteignamarkaðinn
- Miðvikudagur, 2. apríl 2008, Innlent Stimpilgjöld af fyrstu íbúð burt
- Föstudagur, 28. mars 2008, Innlent Ákvarðað um stimpilgjöld
- Fimmtudagur, 3. apríl 2008, Innlent Álykta um stimpilgjöld
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































