Segja laun kennara ekki hafa fylgt launaþróun viðmiðunarhópa
Kennarasamband Íslands segir, að launaþróun félagsmanna í framhaldsskólum hafi ekki fylgt launaþróun hefðbundinna viðmiðunarhópa hjá ríkinu á yfirstandandi samningstímabili og hafi framhaldsskólakennarar dregist umtalsvert aftur úr þeim í grunnlaunum.
KÍ segir, að árið 2002 hafi meðaldagvinnulaun framhaldsskólakennara verið þau sömu og meðaldagvinnulaun félagsmanna BHM. Um mitt síðasta ár hafi meðaldagvinnulaun kennara hins vegar verið komin 7 prósent niður fyrir meðaldagvinnulaun félagsmanna BHM. Í krónum talið var munurinn í júlí um 20 þúsund krónur á mánuði og síðan hafi bilið haldið áfram að breikka.
Í ályktun sem félög kennara og stjórnenda í framhaldsskólum hafa sent frá sér segir m.a. að samanburður milli landa á kennaralaunum sem hlutfall af landsframleiðslu á mann sé ekki uppörvandi fyrir íslenska kennara. Hlutfallsleg launastaða þeirra sé mjög slök miðað við flest önnur OECD ríki og sé kaupgeta meðalgrunnlauna framhaldsskólakennara á Íslandi hin fimmta lægsta í OECD ríkjunum.
Í ályktuninni segir að óánægja framhaldsskólakennara með laun sín og starfskjör kunni að leiða til þess að þeir leiti í önnur störf þar sem boðið er upp á betri kjör. Meginviðfangsefni í næstu kjarasamningum sé að koma í veg fyrir að svipað ástand skapist og árið 2000 þegar slök launaþróun leiddi til tveggja mánaða verkfalls. Í næstu kjarasamningum þurfi að leiðrétta laun kennara í framhaldsskólum og tryggja að kjör þeirra haldi í við laun annarra háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna.
Innlent »
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 21. febrúar 2008, Innlent Segja framhaldsskólakennara hafa dregist aftur úr
- Sunnudagur, 16. september 2007, Innlent Framhaldsskólakennarar hafa áhyggjur af launaþróun
- Mánudagur, 19. maí 2008, Innlent Segja framhaldsskólakennara hafa dregist afturúr
- Fimmtudagur, 10. apríl 2008, Innlent Næstu samningar gætu skilið milli feigs og ófeigs í skólastarfi
- Mánudagur, 20. ágúst 2007, Innlent Vilja að lágmarkslaun hækki um 30%
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































