Veiðum hætt á hádegi

Loðnuveiðar verða stöðvaðar á hádegi á morgun.

Loðnuveiðar verða stöðvaðar á hádegi á morgun. mbl.is

Ákveðið hefur verið að hætta loðnuveiðum á hádegi á morgun. Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, ákvað þetta nú síðdegis að tillögum Hafrannsóknastofnunar og verður reglugerð þessa efnis gefin út á morgun.

„Þetta er gífurlegt áfall fyrir þjóðarbúið, sjávarútvegsfyrirtæki, sjómenn og fiskverkafólk og bæjarfélög en það var ekki hægt annað en taka þessa ákvörðun í ljósi þess hve loðnustofninn hefur mælst lítill," sagði Einar við Morgunblaðið. 

Í mælingum Hafrannsóknastofnunar undanfarnar vikur hefur mun minna mælst af kynþroska loðnu en gert var ráð fyrir samkvæmt framreikningum sem byggðir voru á mældum fjölda ungloðnu í nóvember 2006 og ráðgjöf stofnunarinnar um byrjunaraflamark í júní 2007 byggði á. Á grundvelli mælinga undanfarið er mat á stærð veiðistofns loðnu á bilinu 200-270 þúsund tonn. Stærð stofnsins er því langt undir þeirri stærð sem gildandi aflaregla gerir ráð fyrir að skilið sé eftir til hrygningar en það eru 400 þúsund tonn. Þess vegna lagði Hafrannsóknastofnunin  til, að loðnuveiðar verði nú þegar stöðvaðar.

6-7 milljarða tekjutap fyrir stærstu fyrirtækin 
Áætlað er að samanlegt tekjutap þriggja stærstu fyrirtækjanna í uppsjávarveiðum: Ísfélagsins, HB Granda og Síldarvinnslunnar, nemi 6-7 milljörðum króna miðað við síðustu vertíð sem þó varð léleg.

„Þetta er bara skipbrot fyrir fyrirtæki eins og okkur. Síldarvinnslan hefur verið með um 30% af loðnunni. Það eru á milli tveir og þrír milljarðar sem tapast í tekjum vegna þessa. Það vegur mjög þungt í afkomu fyrirtækisins, um þriðjung eða meira og í tekjuöflun starfsfólks okkar, sjómanna og fiskverkafólks. Loðnuvertíðin er tími uppgripa hjá þessu fólki og vegur mjög þungt í heildartekjuöflun þess,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar.

Ekkert fyrirtæki ásamt tengdum aðilum á eins mikið undir loðnunni. Þá segir Gunnþór að ætla megi að þetta snerti  beint afkomu 400 manna á Austurlandi. 

Mikilvægt að menn haldi áfram að leita
„Þó veiðarnar verði stöðvaðar nú er mikilvægt að menn haldi áfram að leita. Gefi ekki upp vonina um að hún skili sér,“ segir Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda.

 Á síðustu vertíð veiddu skip HB Granda 56.000 tonn, sem skiluðu 2,4 milljarða úitflutningstekjum. Nú er aflinn um 6.500 tonn. „Það er ljóst að tekjuskerðingin er alla vega um tveir milljarðar króna. Þessi vertíð er bara sýnishorn núna. Það eru ekki margir kostir aðrir en að horfa til næstu vertíðar og annarra fisktegunda og reyna að bíta á jaxlinn.

Það þarf væntanlega að skera niður einhvern kostnað á móti þessu, en menn horfa lengra fram á við en til einnar vertíðar. Menn eru vanir sveiflum í sjávarútvegi. Við erum heldur ekki búnir að gefa vertíðina upp á bátinn," sagði Eggert.

Mikil áhrif á mannlífið í Eyjum
„Stöðvun loðnuveiða þýðir verulegt tekjutap fyrir Ísfélagið, eða upp á um það bil tvo milljarða króna. Fyrir fyrirtækin þrjú í Vestmannaeyjum, sem eru í loðnunni, þýðir þetta samtals um þrjá til þrjá og hálfan milljarð í tekjutap," segir Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja.

Hann segir að þetta hafi því veruleg áhrif á mannlífið og allt  starfsfólk fyrirtækisins, bæði sjómenn og starfsfólk í landi, bæði í Eyjum og á Þórshöfn.

„Það er ekkert smáræðis áfall að tekjur í bæjarfélaginu vegna loðnuveiða minnki milli ára um þrjá til þrjá og hálfan milljarð ofan á svipaða tekjuskerðingu vegna þorskniðurskurðarins. Samtals eru þetta líklega að minnsta kosti sex og hálfur milljarður króna hér í Vestmanneyjum,“ segir Ægir Páll.

Nánar verður rætt við forstjóra fyrirtækjanna þriggja í Morgunblaðinu á morgun.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara pening og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar Mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Palomino Yearling 4103 10 fet árg. 2006
Fortjald, markísa, sólarsella, verð 1.250.000 Upplýsingar í síma 8971942...
TOYOTA LAND CRUISER 100 VX, 2004
Til sölu "Gullmoli" aðeins ekinn 87Þ. km. einn með öllu. Dísel Uppl. í síma 899...
HYMER FEELING 430 - Létt og meðfærilegt hjólhýsi
HYMER Feeling 430 eru með fullkomnustu smá-hjólhýsum á markaði. Hymer eru eins...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR, bókhald og rekstrarráðgjöf sími 77 50 200 og 519 7585 www.betrir...
 
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...