Keilir tekur að sér flugverndarþjálfun

Ólafur Thordersen og Hjálmar Árnason takast í hendur eftir undirritun samninga. stækka

Ólafur Thordersen og Hjálmar Árnason takast í hendur eftir undirritun samninga.

Morgunblaðið Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is

Samið hefur verið um að menntastofnunin Keilir taki að sér námskeiðahald sem Flugmálastjórnin á Keflavíkurflugvelli hefur annast. Þar er um að ræða fræðslu um flugvernd, öryggisvörslu og endurmenntun. Hjálmar Árnason, forstöðumaður fagskóla Keilis, segir að með þessum samstarfssamningi sé stigið fyrsta skrefið að uppbyggingu öryggisklasa og flugklasa hjá Keili.

Allir starfsmenn við millilandaflugið þurfa að fá fræðslu í öryggismálum, svokallaða flugverndarþjálfun, samkvæmt alþjóðlegum reglum og kröfum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Þetta á við um alla starfsmenn flugfélaga og opinberra stofnana á flugvellinum, annarra þjónustufyrirtækja, verktaka og annarra sem fá aðgangsheimildir að flugvallarsvæðunum. Á þetta við um Keflavíkurflugvöll og aðra flugvelli landsins þar sem millilandaflug fer fram. Flugmálastjórnin á Keflavíkurflugvelli hefur annast þessa fræðslu undanfarin ár, einnig lengri námskeið fyrir þá sem vinna við öryggisgæslu og endurmenntun. Þá eru í undirbúningi sérstök námskeið í flugvernd fyrir stjórnendur. Stofnunin tók í notkun nýjan hermibúnað til þjálfunar við skimum á fólki sem nýtist vel að sögn Arngríms Guðmundssonar, yfirmanns öryggissviðs flugvallarins.

Samið hefur verið um að Keilir taki að sér þetta námskeiðahald frá og með 1. ágúst næstkomandi. Flugmálastjórnin mun áfram bera faglega ábyrgð á verkefninu. „Umfang þessarar starfsemi er orðið mikið og við teljum henni betur fyrir komið í samstarfi við Keili sem sérhæfir sig í fræðslustarfi. Við teljum að hún geti blómstrað þar með öðrum tengdum þáttum,“ sagði Stefán Thordersen flugvallarstjóri þegar gengið var frá samningum.

Að sögn Hjálmars eru uppi hugmyndir að bæta þjónustuþáttum við fræðsluna, í samvinnu við fyrirtækin sem senda starfsfólk á námskeiðin.

Keilir er að byggja upp ýmsar námsleiðir. Samningurinn um námskeiðahald fyrir Flugmálastjórnina á Keflavíkurflugvelli er liður í uppbyggingu tveggja þeirra, öryggisklasa og flugklasa. Í flugakademíunni er ætlunin að sinna kennslu í allri flugtengdri starfsemi svo sem flugmennsku, flugþjónustu, flugumferðarstjórn og flugvirkjun. Áhugi er á svipaðri nálgun í öryggisklasa. Niðurstöður nefndar sem dómsmálaráðherra skipaði um athugun á sameiningu menntunar tollvarða, lögreglumanna, fangavarða og starfsmanna Landhelgisgæslunnar eru nú til athugunar í ráðuneytinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »
Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.

Bátur fauk á annan bát

17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
HÚSBÍLL
FORD 1986 38" ísskápur, vaskur og eldavél. verð 390.þús. uppl. 6595055...
GLÆSILEG KENNSLUBIFREIÐ
Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Þ...
H D Sportster 1200XL
Mikið breytt, mjög öflugt hjól álfelgur screaming eagle kveikja og púst, beint s...
 
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...