Töldu gufuna úr baðinu vera reyk
Slökkviðiliðið á Egilsstöðum var kallað út miðmorguns eftir að tilkynning barst Neyðarlínu um reyk frá húsi við Miðgarð. Mikill viðbúnaður var af hálfu Brunavarna á Héraði sem mættu fullmannaðar á staðinn auk sjúkrabifreiðar og lögreglu. Ekki reyndist þó um eld né reyk að ræða í húsinu, heldur var húsráðandi í baði og lagði vatnsgufu út um glugga hússins. Veður var mjög stillt og kalt á Egilsstöðum í morgun.
Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri, segir tilkynningu hafa borist um reyk úr tvíbýlishúsi að Miðgarði. „Við ruddumst á staðinn en enginn reykur var þar þegar við komum. Þá héldum við að við hefðum farið á skakkan stað og könnuðum málið hjá Neyðarlínu, en það var ekki. Ég hafði samband við lögreglu og bað um að vel yrði farið ofan í þetta. Þetta var svokallað A-útkall vegna reyks í húsi snemma að morgni sem er alltaf ábending á slæmar aðstæður, hugsanlega fólk inni og þar fram eftir götunum. Við þorðum því ekki annað en að fara með allt okkar lið, sjúkrabíl og lögreglu en þetta reyndist ekki neitt."
Baldur segir fólk hafa verið í húsinu og mjög flatt hafi komið upp á það þegar liðið þusti að. Í ljós hefur komið að grandvar og árvökull íbúi í nærliggjandi húsi taldi þétta vatnsgufuna, sem barst úr baðherbergisgluggann,vera reyk og sér skylt að láta Neyðarlínu vita. Baldur segir viðkomandi hafa brugðist hárrétt við og ekki um neitt gabb að ræða.
Þá fór brunaviðvörunarkerfi í gang á Skriðuklaustri í morgun, en ekki reyndist um eld að ræða þegar að var gáð.
Innlent »
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 11. febrúar 2008, Innlent Slökkvilið Akureyrar kallað út að Hafnarstræti
- Fimmtudagur, 26. febrúar 2009, Innlent Æfðu sig að slökkva olíueld
- Sunnudagur, 8. júní 2008, Innlent Flugeldatertu kastað inn um glugga í Kársnesskóla
- Miðvikudagur, 9. apríl 2008, Innlent Eldur í Turninum í Kópavogi
- Mánudagur, 7. janúar 2008, Innlent Eldsupptök enn ókunn
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































