Innlent
| 24 stundir
| 23.2.2008
| 5:30
| Uppfært
6:16
Vatnalögin: Vatnalög tekin á dagskrá
Ögmundur Jónasson og aðrir þingmenn VG voru í fararbroddi í andstöðu gegn vatnalögunum árið 2006. Ávakur/ÞÖK
Þverpólitísk nefnd sem skipuð var þann 15. janúar síðastliðinn til þess að fara yfir vatnalögin mun að öllum líkindum koma saman í næstu viku að sögn formanns nefndarinnar Lúðvíks Bergvinssonar, þingmanns Samfylkingarinnar.
Þarf að greina ágreininginn
„Nefndin er skipuð til þess að takast á við þann ágreining sem uppi var. Við þurfum að skilgreina hann betur og undirbyggja þessa umræðu með meiri rannsóknum. Þegar okkur hefur tekist að greina kjarnann í þessu eins og kostur er þá munum við reyna að ná sameiginlegri lendingu,“ segir Lúðvík aðspurður um hvers hann vænti af starfi nefndarinnar. „Við komum að þessu verkefni með opnum huga,“ segir Lúðvík aðspurður um það hvort afstaða Samfylkingarinnar sé óbreytt, en þingmenn flokksins börðust hart gegn frumvarpinu á sínum tíma. „Það er ekki sjálfgefið að ágreiningurinn verði á nákvæmlega sama stað áfram þegar menn hafa greint þetta,“ segir hann aðspurður um það hvað helst verði deilt um í nefndinni.Ágreiningur leiddur til lykta
Kolbrún Halldórsdóttir, þingkona Vinstri grænna sem einnig á sæti í nefndinni, telur að greiningarvinnu sé að mestu lokið. „Það er hið pólitíska viðfangsefni sem er eftir. Það er að komast að niðurstöðu um það með hvaða hætti eignarhald á vatnsauðlindinni skuli skilgreint í lagatexta.“ Kolbrún segir Vinstri græn vilja að eignarréttur á vatnsauðlindinni verði skilgreindur með þeim hætti að almenna reglan sé að auðlindin sé í eigu þjóðarinnar og sú verðmætasköpun sem verður til við nýtingu hennar komi þjóðinni allri til góða.„Við erum búin að takast á um þessi mál áratugum saman. Nú þurfum við að leiða þennan pólitíska ágreining til lykta, og ég vona svo sannarlega að einkaeignarsinnarnir hafi ekki betur í þeim efnum,“ segir Kolbrún.
Lögin verði óbreytt
„Ég legg upp með það sem mér er falið að vinna og hef umboð til samkvæmt skipunarbréfinu,“ segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem einnig situr í nefndinni. „Okkur er ætlað að fara yfir ákvæði nýju vatnalaganna og hvort þau samræmist öðrum ákvæðum á þessu sviði,“ bætir hann við. Sigurður segir það ekki vera hlutverk nefndarinnar að endurskrifa lögin og vonast til þess að lögin muni taka gildi í óbreyttri mynd.Í hnotskurn
Vatnalögin voru samþykkt á Alþingi vorið 2006 eftir mikil átök. Gert var samkomulag um að fresta gildistöku þeirra til 1. nóv. 2007 og síðar til 1. nóv. 2008. Þingmenn Frjálslyndra, Samfylkingar og Vinstri grænna stóðu saman gegn lögunum og lýstu því yfir að þau yrðu afturkölluð ef þau fengju meirihluta í alþingiskosningum 2007.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin





































