Vissi að líkur væru á ísingu

Morgunblaðið Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is

Flugmaðurinn sem leitað hefur verið að síðan vél hans hvarf af ratsjá á fimmtudagsmorgun hafði fengið upplýsingar um að hófleg hætta væri á ísingu á flugleiðinni, í 7.000 til 10.000 feta hæð, samkvæmt upplýsingum frá Flugþjónustunni Reykjavík sem veitti flugmanninum flugþjónustu. Fram hefur komið að ísing þvingaði vélina sífellt niður á við þar til hún hvarf af ratsjá.

Leit að flugmanni vélarinnar, sem er af gerðinni Piper PA 28 Cherokee, var haldið áfram fram í myrkur í gær. Varðskip hefur leitað á svæðinu frá því á fimmtudag ásamt Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar sem fór til leitar í birtingu. Aðstæður til leitar voru afar erfiðar, vindur 25-35 m/s og ölduhæð á bilinu 8-12 metrar. Gekk á með dimmum éljum.

Að sögn starfsmanna Flugþjónustunnar var flugmaðurinn ágætlega búinn, með þurrgalla og lítinn björgunarbát í vélinni. Þá á hann töluvert marga flugtíma að baki en hefur tiltölulega litla reynslu af því að fljúga eins hreyfils flugvélum yfir opið haf.

Flugmaðurinn lenti á Reykjavíkurflugvelli á mánudagskvöld og fékk flugþjónustu hjá Flugþjónustunni Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu hugðist hann leggja af stað áleiðis til Skotlands á miðvikudag en hætti við þar sem honum var tjáð að veruleg hætta væri á ísingu á flugleiðinni. Á fimmtudag gerðu veðurspár ráð fyrir hóflegri hættu á ísingu og ákvað maðurinn þá að leggja af stað.

Tæplega sex tíma flug

Sá sem veitir flugmönnum flugþjónustu útvegar m.a. gögn um veður og veðurspá á flugleiðinni, hvaða varaflugvellir eru á leiðinni og hvar búast má við ísingu og ókyrrð. Þá fær flugmaðurinn flugáætlun þar sem m.a. kemur fram áætlaður flugtími, útbúnaður flugvélarinnar o.fl.

Í þessu tilviki var gert ráð fyrir að flugið tæki tæplega sex klukkustundir en í vélinni var nægjanlegt eldsneyti til 10-14 klukkustunda flugs.

Flugvélin var búin takmörkuðum afísingarbúnaði sem dugar þegar ísingin er væg. Svo virðist sem hann hafi ekki dugað til. Þá verður að hafa í huga að ísing getur hlaðist skjótt á flugvélar við tilteknar aðstæður og hún getur bæði hlaðist utan á vélina og valdið vélartruflunum.

Ákvörðun flugmanns

Ákvörðun um hvort haldið skuli af stað er ávallt í höndum flugmanns og það er hvorki hlutverk flugþjónustufyrirtækja né flugturns að banna mönnum að taka á loft vegna slæmra aðstæðna eða taka ákvörðun um að hleypa þeim í loftið. Að sögn starfsmanna Flugþjónustunnar segja þeir flugmönnum frá því ef þeir mæla ekki með brottför en það sé þó ávallt skýrt að ákvörðunin sé flugmannsins.

Að sögn Hrafnhildar Brynju Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa Flugstoða, hafa flugmálayfirvöld ekki heimild til að banna flugmönnum að leggja af stað þótt veðurútlit á flugleið þeirra sé óhagstætt. Flugmenn fái aðgang að öllum nauðsynlegum gögnum hjá flugþjónustufyrirtækjum og séu fullfærir um að taka ákvarðarnir sjálfir.

Fyrrverandi flugumferðarstjóri, sem rætt var við, minnti á að sá sem bannar einhverjum för verði væntanlega líka að leyfa honum að halda af stað þegar aðstæður breytast. Í því sé ekki síður mikil ábyrgð fólgin.

Missa meðvitund við 35°C

Eins og fyrr segir var maðurinn í þurrgalla og með björgunarbát í vélinni.

Að sögn Hilmars Snorrasonar, skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna, eru björgunargallar líkt og notaðir eru um borð í skipum, þeim eiginleikum búnir að í þeim er jafnt flot, þ.e. þeir halda vitunum ekki upp úr sjó líkt og björgunarvesti eru hönnuð til að gera. Þá eru gerðar þær kröfur til björgunargalla að líkamshiti manns sem er í 5°C heitum sjó lækki ekki um meira en 2°C eftir sex klukkustunda veru í sjónum. „Það er alltaf spurning um hversu lengi þú hefur meðvitund,“ segir Hilmar. Menn missi gjarnan meðvitund þegar líkamshiti fer niður fyrir 35°C en þeir geti þó haldið meðvitund töluvert lengur. „Menn sem eru að kólna missa alltaf meðvitund. Það er bara spurning um tíma.“ Í verulegum sjó sé sömuleiðis hætta á að björgunargallar rifni.

Hafi flugmaðurinn komist í björgunarbát sem hafi staðist öldurótið á staðnum eru lífslíkur hans mun meiri en ella, að sögn Hilmars.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »
Úr safni.

Átak gegn ölvunarakstri

15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Porsche Boxster
Til sölu Porsche Boxster Árgerð: 2000 Ekin: 112 þús Flottur og í góðu ástand...
FÖNDURSETT Í ÚRVALI
Föndursett í úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid...
Varahlutir í MITSUBISHI PAJERO o.fl.
Eigum notaða varahluti í flesta Mitsubishi bíla svo sem Pajero, L200, Lancer, Ga...
Skotveiðivörur í úrvali
Hreinsisett, töskur, sjónaukar og m.fl. Skotfæri í riffla á góðum verðum. Netla...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...