Kveikt í yfirgefnum bíl

Kveikt var í bíl, sem farið hafði útaf á Flugvallarvegi á Suðurnesjum fyrir nokkrum dögum. Að sögn lögreglu komu slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja  og slökktu eldinn í bílnum, sem er ónýtur eftir. 

Vitni sá til tveggja bíla, sem voru við bílinn skömmu fyrir brunann og er þeirra nú leitað.  Málið er í rannsókna.

Fjölmargar kvartanir bárust til lögreglu frá íbúum nærri Akurskóla vegna brunaviðvörunarkerfi skólans en bilun er í kerfinu og varð það að fara í gang í tíma og ótíma í gærkvöldi og fram á nótt með miklum hávaða.  Að sögn lögreglu stendur viðgerð yfir. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert