Sultartangavirkjun framleiðir rafmagn á ný

Annar spennirinn sem bilaði.
Annar spennirinn sem bilaði.

Viðgerð lauk fyrir helgina á öðrum spenni Sultartangastöðvar, en báðir vélaspennar stöðvarinnar biluðu með skömmu millibili í lok síðasta árs.
Bilun varð í einangrun spennanna sem líklega má rekja til eldinga.

Landsvirkjun segir að verkið gekk vel í alla staði og er Sultartangastöð farin að framleiða rafmagn á ný en með hálfum afköstum eftir að hafa verið stopp síðan á aðfangadag.

Fyrirtækið segir, að þrátt fyrir þessa miklu bilun hafi nánast full afhending verið á ótryggðu rafmagni og afgangsorku til viðskiptavina Landsvirkjunar meðan á viðgerð stóð. Með raforkuframleiðslu í Sultartangastöð á ný eftir tveggja mánaða hlé aukist öryggið í raforkukerfinu verulega.

Vegna langs afhendingartíma á varahlutum í spennanna var gripið til þess ráðs að flytja varahluti frá spenninum sem bilaði á aðfangadag yfir í spenninn sem bilaði 1. nóvember. Viðgerð þessi fór fram á staðnum og önnuðust starfsmenn Landsvirkjunar og Landsnets verkið undir leiðsögn sérfræðinga hins franska framleiðanda spennanna. Áætlað er að viðgerð á seinni spenninum ljúki í lok apríl en bíða þarf eftir nýjum varahlutum frá framleiðandanum í hann.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert