Samkynhneigðir varaðir við því að fara til Serbíu
Frá Hinsegin dögum í Reykjavík. Árvakur/Árni Sæberg
Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride vekja athygli á bágbornu ástandi mannréttindamála í Serbíu og þá alveg sérstaklega alvarlegri stöðu mannréttinda samkynhneigðra og annars hinsegin fólks, þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Tilkynningin er eftirfarandi:
„Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður haldin í Belgrad, höfuðborg Serbíu, dagana 20.– 24. maí næst komandi. Margir þeirra sem koma að söngvakeppninni, bæði listamenn, búningahönnuðir og aðrir eru samkynhneigðir. Þá er stór hluti aðdáenda söngvakeppninnar samkynhneigður, tvíkynhneigðir og transgenderfólk og ætla má að það hyggist fara til Belgrad til að fylgjast með keppninni.
Full ástæða er til að hafa verulegar áhyggjur af öryggi þeirra. Tilraunir lesbía, homma, tvíkynhneigðra og transgenderfólks til að halda Gay Pride hátíðir í Belgrad hafa verið barðar niður af mikilli hörku af andstæðingum tilveruréttar þeirra og dæmi eru um að þessir menn hafi fylkt liði þúsundum saman til að berja á nokkrum tugum hugrakkra brautryðjenda mannréttinda í landinu.
Árásir öfgahópa á hinsegin fólk í Serbíu og þá sérstaklega í Belgrad hafa ítrekað átt sér stað án teljandi afskipta lögreglu, sem jafnvel hefur haldið sig fjarri slíkum árásum með skipulögðum hætti. Eftir liggur fjöldi af stórslösuðu fólki sem jafnvel hefur sumt verið handtekið fyrir að reyna að vekja athygli á málstað sínum.
Hinsegin dagar vara hinsegin fólk við því að fara til Belgrad. Það er aftur á móti fullkomlega eðlilegt að margir kjósi að gera það engu að síður. Hinsegin dagar skora á lesbíur, homma, tvíkynhneigða og transgenderfólk sem fer til Belgrad í tengslum við Eurovision að gæta þess að vera ekki eitt á ferli í borginni og reyna að forðast eins og hægt er að vekja athygli á kynhneigð sinni, nema öryggisgæsla sé fullnægjandi.
Einnig skora Hinsegin dagar á Ríkisútvarpið að huga að öryggi íslensku þátttakendanna og taka þessa ógn alvarlega. Þá skora Hinsegin dagar á íslensk stjórnvöld að vekja athygli serbneskra stjórnvalda á þessum áhyggjum og þrýsta á Serba um að standa við evrópska og alþjóðlega mannréttindasáttmála og samninga, sem tryggja eiga lesbíum, hommum, tvíkynhneigðum og transgenderfólki sömu mannréttindi og aðrir íbúar Evrópu njóta.“
Bloggað um fréttina
-
Ásgrímur Hartmannsson Gleymum hommunum eitt augnablik... -
Stefán Friðrik Stefánsson Dapurt ástand - verður Eurovision haldið í Serbíu? -
-
Guðrún Emilía Guðnadóttir Samkynhneigðir varaðir við því að fara til Serbíu.
Innlent »
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 9. ágúst 2008, Innlent Gleðigangan hafin
- Föstudagur, 14. nóvember 2008, Innlent Þögul Gay Pride-ganga?
- Föstudagur, 8. ágúst 2008, Innlent Hinsegin sól og söngur
- Fimmtudagur, 24. apríl 2008, Innlent Eurobandið spilar í stórborgum
- Mánudagur, 18. febrúar 2008, Innlent Ekki hefur verið tekin afstaða til Kosovo
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































