Dánarbú Kjarvals á ekki myndir Reykjavíkurborgar
Jóhannes Kjarval. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Hæstiréttur hefur hafnað kröfu dánarbús listmálarans Jóhannesar Kjarvals um að viðurkenndur yrði eignarréttur þess að munum, sem fluttir voru úr vinnustofu listmálarans síðla árs 1968. Var dómur Héraðsdóms Reykjavíkur staðfestur.
Um er að ræða fjölda listaverka og annarra muna sem geymdir voru í húsnæði sem Kjarval hafði umráð yfir að Sigtúni 7 í Reykjavík. Gjöfin var mikil að umfangi, meðal annars voru þar 5.062 myndverk af ýmsum gerðum.
Dánarbúið byggði kröfu sína á því, að ekki væri sannað að Kjarval hefði með munnlegri yfirlýsingu 7. nóvember 1968 gefið Reykjavíkurborg munina heldur aðeins afhent borginni þá til geymslu.
Guðmundur Alfreðsson bar fyrir dómi, að hann hefði verið viðstaddur þegar Kjarval gaf Reykjavíkurborg munina með munnlegri yfirlýsingu til Geirs Hallgrímssonar, þáverandi borgarstjóra. Í málinu voru lagðar fram dagbókarfærslur Guðmunda frá þessum tíma sem staðfestu frásögn hans.
Þá var í minnisblaði Baldurs Guðlaugssonar, dags. 21. september 1982, haft eftir Guðmundi að hann hefði verið sannfærður um að um gjöf hefði verið að ræða.
Eftir að dómur var kveðinn upp í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur gaf Jón Halldór Gunnarsson, sendibílstjóri, skýrslu fyrir dómi en hann aðstoðaði við flutning gagnanna 1968. Segir Hæstiréttur, að framburður hans hafi rennt enn frekari stoðum undir að um gjöf hefði verið að ræða.
Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að gögn málsins bendi eindregið til þess að ákvörðun Kjarvals um að afhenda Reykjavíkurborg þá muni sem um ræði, hefði átt aðdraganda og mótast á nokkrum tíma, einkum eftir að borgin ákvað að reisa listasafn og sýningahús sem skyldi bera nafn listamannsins. Taldist því sannað að Kjarval hefði gefið Reykjavíkurborg þá muni sem málið snérist um með munnlegri yfirlýsingu.
Bloggað um fréttina
-
Björgvin Guðmundsson Borgin á verk Kjarvals -
Andrés Magnússon Gallar á gjöf Kjarvals -
Þorkell Sigurjónsson LISTAMAÐURINN KJARVAL. -
Stefán Friðrik Stefánsson Borgin á verk Kjarvals - fjölskyldukröfu hafnað
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 7. febrúar 2008, Innlent Olíufélög greiði bætur
- Fimmtudagur, 10. apríl 2008, Innlent Forstjóri Samkeppniseftirlitsins þarf ekki að víkja sæti
- Þriðjudagur, 16. september 2008, Innlent Fær ekki að verja Jón Ólafsson
- Fimmtudagur, 19. júní 2008, Innlent Hæstiréttur staðfestir sýknu Fons
- Miðvikudagur, 23. apríl 2008, Innlent Verða að veita aðgang að samningi um tónlistarhús
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































