Ungir menn fá þunga dóma
Hús Hæstaréttar. Brynjar Gauti
Hæstiréttur hefur dæmt sex unga menn til fangelsisvistar, þar af þrjá í 3-4 ára fangelsi, fyrir fjölda brota, þar á meðal rán, líkamsárásir, fjölda auðgunarbrota, húsbrot, fíkniefnabrot og brot gegn valdstjórninni. Hæstiréttur þyngdi refsingar nokkurra piltanna umtalsvert frá héraðsdómi.
Sá sem þyngsta dóminn hlaut, Stefán Blackburn, var dæmdur í 2½ árs fangelsi í héraðsdómi. Hæstiréttur sakfelldi piltinn fyrir þrjár líkamsárásir, ýmis auðgunarbrot, þar á meðal þrjú fullframin rán og eina ránstilraun, nytjastuld, fíkniefnabrot og umferðarlagabrot.Dómurinn segir, að við ákvörðun refsingar sé litið til þess að ein líkamsárásanna, sú á leigubílstjórann, var fólskuleg og stórhættuleg og hefði hæglega getað leitt til bana þess sem fyrir henni varð. Fram kemur í dómi Hæstaréttar, að Stefán hafi slegið bílstjórann tvívegis í höfuðið með hamri. Haft var eftir lækni, að brotið í höfuðkúpunni hafi verið eins og far eftir hamarshaus og hafi þurft mikið högg til þess að valda slíkum áverka. Höggið olli varanlegum vefjaskaða í heila sem leiddi til minnisskerðingar bílstjórans og á hann á hættu að fá flogaveiki af þessum sökum.
Davíð Þór Gunnarsson, sem er 19 ára, var dæmdur í 3 ára og sex mánaða fangelsi fyrir fjölda auðgunarbrota, nytjastuldi, húsbrot, brot gegn valdstjórninni og umferðar- og fíkniefnalagabrot. Með brotunum rauf Davíð Þór skilorð eldri dóms þar sem sex af níu mánaða fangelsisrefsingu var skilorðsbundin.
Ívar Aron Hill Ævarsson, 21 árs, var dæmdur í 3 ára fangelsi fyrir fjölda auðgunarbrota, þar af þrjú ránsbrot, nytjastuldi, stórfelld eignaspjöll ásamt umferðarlaga- og fíkniefnabrotum.
Að auki var 25 ára karlmaður dæmdur í 14 mánaða fangelsi fyrir auðgunar-, umferðarlaga- og fíkniefnabrot og 27 ára karlmaður í 6 mánuða fangelsi fyrir ýmis auðgunar- og umferðarlagabrot. Einn karlmaður, 27 ára, var dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi, m.a. fyrir þrjú rán, en Hæstiréttur fékk upplýsingar um að maðurinn hefði breytt lífi sínu mjög til betri vegar auk þess sem hann hafði ekki áður verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi.
Bloggað um fréttina
-
Magnús Jónsson Eru þetta þungir dómar ? -
-
Brjánn Guðjónsson En... -
jósep sigurðsson Að byrgja brunninn áður en...............
Innlent »
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 24. nóvember 2008, Innlent Gæsluvarðhald staðfest
- Mánudagur, 18. júní 2007, Innlent Áframhaldandi gæsluvarðhald vegna síbrota
- Fimmtudagur, 12. júní 2008, Innlent 10 mánaða fangelsi fyrir fjölda brota
- Föstudagur, 30. maí 2008, Innlent 16 og 17 ára piltar dæmdir fyrir fjölda brota
- Fimmtudagur, 23. október 2008, Innlent Karl og kona sakfelld fyrir rán
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































