Eiturlyf í Borgarfirði

Þessi mynd var tekin við annað tækifæri er hassplöntur fundust …
Þessi mynd var tekin við annað tækifæri er hassplöntur fundust við húsleit. mbl.is/Július

Lögreglan í Borgarnesi gerði húsleit í einbýlishúsi í uppsveitum Borgarfjarðar milli klukkan 5 og 6 í dag og handtók par á þrítugsaldri vegna meintra fíkniefna sem fundust við húsleitina.

Við húsleitina fann lögreglan meint kannabis fræ og maríjúana, samtals um 30 grömm.

Parið sem er á þrítugsaldri hefur áður komið við sögu lögreglunnar. Þau voru handtekin en síðan sleppt að yfirheyrslum loknum.

Málið er enn í rannsókn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert