Leyfði honum að bragða eigin meðal
„Ástæðan fyrir þessari færslu er ofboðslegt einelti sem mér þótti Ómar [R. Valdimarsson] leggja fólk í á bloggsíðu sinni. Færslan stendur ein og sér og var háð því hvernig hann skrifar um aðra. Ég leyfði honum að bragða á eigin meðali,“ segir dagskrárgerðarmaðurinn Gaukur Úlfarsson.
Gaukur var í vikunni dæmdur til að greiða Ómari R. Valdimarssyni 300.000 krónur í miskabætur vegna ummæla á bloggsíðu sinni. Gaukur var meðal annars dæmdur fyrir að kalla Ómar aðal rasista bloggheima.
Svæsin skrif um Nikolov
„Rót bloggfærslunnar voru skrif Ómars um Paul Nikolov sem var í framboði fyrir vinstri-græna,“ segir Gaukur. „Ómar skrifaði ótrúlega svæsna og langsótta samsæriskenningu um að Paul Nikolov væri að skrifa á vefsíður undir hinum og þessum dulefnum, að Aron Pálmi mætti að rotna í fangelsi. Fólk skildi eftir athugasemdir og var mjög hneykslað á Paul Nikolov án þess að draga nokkurn tíma í efa að ef til vill væri þetta eingöngu ómaklegur rógburður.“Gaukur segist hafa skilið eftir athugasemd á bloggsíðu Ómars í kjölfar skrifa hans um Paul Nikolov þar sem hann spurði um ástæðu eineltisins í garð Nikolovs. Athugasemdunum var eytt og Gauki var meinaður aðgangur að athugasemdakerfi bloggsíðunnar. „Auðvitað meinti ég aldrei að Ómar væri rasisti,“ segir Gaukur. „En ég gaf mér leyfi til að álykta það vegna þess að hann svaraði mér ekki og meinaði mér aðgang að athugasemdakerfi sínu. Alveg eins og Ómar ályktaði að Paul Nikolov vildi að Aron Pálmi rotnaði í fangelsi.“
10 mínútna frestur
Í kjölfarið hringdi Ómar í Gauk og gaf honum tíu mínútna frest til að fjarlægja færsluna ella myndi lögfræðingur hans hafa samband. „Það virkar ekki vel á mann að láta hóta sér,“ segir Gaukur. „Ef hann hefði beðið mig kurteislega hefði ég íhugað að fjarlægja færsluna.“Umræðan um málið hefur verið heit í þjóðfélaginu og margir tjáð sig um málið. Reynir Traustason, ritstjóri DV, kallar Gauk til dæmis netníðing í vefsíðunni dv.is. „Fólk hefur tjáð sig um málið án þess að hafa kynnt sér það,“ segir Gaukur. „Flestir virðast sammála því að ég sé bloggníðingur – að ég hafi stundað að níða fólk, sem er alls ekki rétt. Fólk getur kynnt sér það á bloggsíðunni minni að það er ekki eina einustu færslu að finna sem er í líkingu við færsluna um Ómar.“
Í hnotskurn
Gaukur Úlfarsson var í vikunni dæmdur í héraðsdómi fyrir ummæli um Ómar R. Valdimarsson á bloggsíðu. Honum ber að greiða Ómari 300.000 krónur í miskabætur og 500.000 í málskostnað. Gaukur hefur áfrýjað til Hæstaréttar.Bloggað um fréttina
-
Jenný Anna Baldursdóttir 100% sammála -
Friðrik Þór Guðmundsson Hver er netníðingur? Gaukur? Ómar? Reynir? -
Jac G. Norðquist Ja sko...... -
Innlent »
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 29. janúar 2009, Innlent Sýknaður af ummælum í bloggi
- Þriðjudagur, 26. febrúar 2008, Innlent Sekur um meiðyrði á bloggi
- Fimmtudagur, 28. febrúar 2008, Innlent Björn Bjarnason: Dómur kom ekki á óvart
- Miðvikudagur, 25. febrúar 2009, Innlent Ármann svarar frænda sínum á bloggsíðu
- Föstudagur, 1. febrúar 2008, Innlent Útlendingar sitja við annað borð
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































