Gunnuhver færist í aukana

Leirhverir geta verið mjög varasamir.
Leirhverir geta verið mjög varasamir. mbl.is/ÞÖK

Undanfarið hafa orðið nokkrar breytingar á virkni hverasvæðisins við Gunnuhver á Reykjanesi. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að gufuvirkni á hverasvæðinu hafi aukist og breiðst nokkuð út auk þess sem suða í leirhverum hafi aukist. Fólk er hvatt til að gæta fyllstu varúðar ef það fer um svæðið.

Í tilkynningunni segir:
„Í Gunnuhver er búið að vera nokkurt leirgos undanfarna daga. Leirsletturnar ganga gjarnan 2-4 metra í loft upp en öðru hvoru ganga leirspýjurnar hærra í loft upp og nokkuð út frá hvernum.

Það er erfitt að reikna út hversu hátt eða langt hverinn eys leirnum svo það er vissara að halda sig fjarri honum. Það er líka þekkt að þegar leirhverir eru í svona ham þá geta orðið í þeim sprengingar sem þeyta sjóðandi eðju tugi og jafnvel hundruð metra frá hvernum.

Vegurinn að bílastæðinu við Gunnuhver er nú í sundur rétt vestan við bílastæðið við hverasvæðið. Þar hefur hver sem lá fast að veginum stækkað og nær nú inn í veginn. Einnig hafa nokkur gufuaugu opnast þvert yfir veginn. Af þessu sökum hefur veginum sem liggur að hverasvæðinu verið lokað fyrir bílaumferð.

Rétt er að minna fólk aftur á að ávallt þarf að gæta fyllstu varúðar þegar farið er um hverasvæði!"


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert