Sex sólarhringa að brjóta sér 22 km leið í gegnum ísinn

Starfsmenn Ístaks sprengdu vakir í ísinn þar sem hann var þykkastur til þess að auðvelda ... stækka

Starfsmenn Ístaks sprengdu vakir í ísinn þar sem hann var þykkastur til þess að auðvelda togaranum að brjóta sér leið í gegnum ísinn, en það tók sex sólarhringa að brjóta sér leið inn í fjarðarbotninn.

Morgunblaðið Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is

Hafís hefur valdið starfsmönnum Ístaks sem vinna að virkjunarframkvæmdum við Sisimiut á vesturströnd Grænlands erfiðleikum að undanförnu. Hafísinn gerði erfitt fyrir um aðdrætti og voru þeir orðnir olíulitlir fyrir vikið fyrir skömmu. Í vikunni rættist þó úr því þeir fengu 700 tonna skuttogara til að ryðja sér leið í gegnum ísinn 22 kílómetra leið frá Sisimiut inn í fjarðarbotninn þar sem virkjuninni er fyrirhugaður staður.

„Við erum nýbúnir að brjóta okkur leið í gegnum ísinn og fá allt fyllt upp af olíu, þannig að við erum ansi brattir í dag. Ef þú hefðir talað við mig fyrir rúmri viku síðan hefði ég verið heldur svartsýnni,“ sagði Guðmundur Þórðarson byggingartæknifræðingu, sem stýrir framkvæmdunum fyrir Ístak á Grænlandi í samtali við Morgunblaðið.

Virkjuninni er ætlaður staður innst í þröngum firði sem heitir „Annar fjörður“ upp á grænlensku. Sjóleiðin er helsti samgöngumátinn við þéttbýlið í Sisimiut, en virkjuninni er ætlað að leysa af hólmi dísilrafstöðvar á svæðinu sem séð hafa bænum og nágrenni fyrir orku.

Guðmundur sagði að þeir hefðu getað haldið sjóleiðinni opinni allt til áramóta með því að sigla daglega á milli, þó þeir hafi þurft að hafa mjög mikið fyrir því í desember. „Við höfum verið óheppnir með veðurlag á þessu svæði í vetur miðað við síðustu 10–15 ár. Til dæmis hefur rekísinn hér fyrir utan vesturströndina ekki náð jafnmikilli útbreiðslu til suðurs í 15 ár, auk þess sem lofthitinn í janúar og febrúar hefur verið heldur lægri að meðaltali en undanfarin 10 ár.“

Guðmundur sagði að þeir hefðu vitað þegar þeir tóku að sér verk á þessum stað að það gæti verið dálítið áhættusamt að halda úti framkvæmdum árið um kring og að til þess gæti komið að þeir þyrftu jafnvel að lúta náttúrulögmálunum og leggja niður störf yfir háveturinn, en til þess hefði ekki komið enn og ekki myndi koma til þess í vetur því þeir væru komnir með olíubirgðir sem dygðu þeim fram í maí.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »
Úr safni.

Átak gegn ölvunarakstri

15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag um að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
FERÐ TIL FJALLA
Ferð til fjalla Bestu fríin eru með allan búnað me...
Komdu fljúgandi og gistu í Tjaldbót-2012
Eða leigðu 2-4 sæta flugvélar og sumarhús í nágrenni Eyjafallajöluls og Heklu. ...
Toyota Avensis 1800, árg. 2006 5 gíra.
Fæst á aðeins 1200 þús. stgr. Ek. 175 þús. Gott lakk og vel með farinn bíll. E...
Er tölvan hæg eða biluð, ódýrari tölvuaðstoð
Þjónusta fyrir þig þegar þér hentar! Tek að mér að uppfæra, rykhreinsa og laga ...
 
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...
Teacher, nautical education
Grunn-/framhaldsskóla
Lofoten Maritime College Norway POSI...
Járnabindingar
Iðnaðarmenn
Járnabindingar Járnamaður með áratugarey...