Algeng lyf ekki til

 Tímabundinn skortur á ákveðnum lyfjum í landinu hefur farið vaxandi á undanförnum árum og í vetur keyrði um þverbak, að sögn Önnu Birnu Almarsdóttur, prófessors og forstöðumanns Rannsóknastofnunar um lyfjamál, RUL.

Verkjastillandi og bólgueyðandi lyfið íbúfen var ófáanlegt í nokkra mánuði fyrr í vetur hér á landi. Hjartalyfin hýdramíl og atenólól fengust ekki í nokkrar vikur svo dæmi séu tekin. Í sumum tilfellum voru töflur ekki til í réttri stærð í langan tíma og þurftu sjúklingar jafnvel að brjóta stórar töflur í fernt. Það getur hins vegar sumum reynst ógerlegt vegna þrekleysis og/eða sjónskerðingar.

Sigurður Guðmundsson landlæknir, sem í vikunni heldur erindi á málþingi RUL um vandann, segir sjúklinga hafa orðið fyrir óþægindum og fyllst óöryggi en tekist hafi að bjarga málum fyrir horn með samvinnu margra aðila. „Skortur á lyfjum hefur svo ég viti til ekki valdið verulegum skaða en hættan er hins vegar ljós,“ segir Sigurður.

Hann getur þess að málin hafi verið rædd fram og aftur við lyfjaframleiðendur og innflytjendur á undanförnum árum. „Ef það á að gera eitthvað meira en að höfða til samvinnu og metnaðar þeirra sem hér eiga hlut að máli þá eru ýmsar leiðir færar. Það er ekki spurning að það gæti hjálpað okkur að komast inn á stærri markað eins og rætt hefur verið um á vettvangi stjórnmálanna. Bætt aðgengi að samheitalyfjum gæti aukið aðgengi að þeim lyfjum sem þörf er á. En það kann að vera ástæða til að skerpa á skyldum innflytjenda.“

Sigurður tekur það jafnframt fram að ef ástæðan fyrir síendurteknum lyfjaskorti sé sú að ekki sé hagkvæmt að flytja lyfin inn megi spyrja hvort setja eigi Lyfjaverslun Íslands aftur á laggirnar til þess að landsmenn fái þau lyf sem þeir þurfa.

Samkvæmt lyfjalögum er lyfjaheildsölum skylt að eiga nægar birgðir, að mati heilbrigðisyfirvalda, af tilteknum nauðsynlegum lyfjum, að því er Anna Birna bendir á. „Við ætlum að ræða á málþinginu hvers vegna lyf skortir og hvað sé hægt að gera til að koma í veg fyrir að það gerist,“ segir Anna Birna og bætir við að hún vonist til að aðilar á markaðinum geti sameiginlega fundið haldbærar leiðir til að koma í veg fyrir skort á lyfjum á Íslandi.

Í hnotskurn
Rannsóknastofnun um lyfjamál við Háskóla Íslands var stofnuð í fyrra. Markmiðið er að auka rannsóknir og fræðslu um lyfjanotkun og lyfjastefnu.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »
Úr safni.

Átak gegn ölvunarakstri

15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag um að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
KEBEK NAMA HEILSÁRSDEKK
Kebek - Nama heilsársdekk Pakkatilboð 4 dekk + vinna 185/55 R 14 kr. ...
Til leigu mjög góð 2-herb,55 fm íbúð á 3hæð AKRANESI
Til leigu mjög góð 2-herb,55 fm íbúð á 3hæð AKRANESI Leiga 75þús með hita og ra...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
Ormar í veiðina frá Óþekktarormum
Nú er maðkur í mysunni og ormar til sölu! Úrvals laxaormar feitir og vænir á ...
 
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...
Teacher, nautical education
Grunn-/framhaldsskóla
Lofoten Maritime College Norway POSI...
Járnabindingar
Iðnaðarmenn
Járnabindingar Járnamaður með áratugarey...