Sjálfstæði Kósóvó viðurkennt
Íslensk stjórnvöld hafa formlega viðurkennt sjálfstæði Kósóvó. Var það gert í bréfi sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sendi Hashim Thaci forsætisráðherra Kósósvó í morgun. Hún hefur ennfremur tilkynnt serbneskum yfirvöldum um málið.
Samkvæmt fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins segir í bréfinu:
„Við væntum þess að Kósóvó sýni í verki fulla virðingu fyrir mannréttindum og réttindum minnihlutahópa, eins og það hefur skuldbundið sig til í sjálfstæðisyfirlýsingunni," sagði Ingibjörg Sólrún en hún er stödd í Brussel þar sem hún á fimmtudag mun sitja fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins og alþjóðaráðstefnu kvenleiðtoga um aðkomu kvenna að friðar og öryggismálum.
Í bréfinu leggur hún áherslu á að Kósóvó sé lýðveldi margra þjóða og mikilvægt sé að það hafi jafnræði og réttarvernd allra að leiðarljósi. Þetta sé í anda friðaráætlunar Martti Ahtisaaris, sáttasemjara Sameinuðu þjóðanna, en yfirvöld í Kósóvó hafa heitið því að framfylgja áætluninni.
Kósóvó lýsti yfir sjálfstæði 17. febrúar sl. í kjölfar árangurslausra samningaviðræðna um framtíð Kósóvó, er fram fóru undir stjórn Ahtisaaris.
Utanríkisráðherra sagði mikilvægt að áfram yrði unnið að því að ná samkomulagi um framtíð Kósóvó sem öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna gætu við unað. Þá væri áframhaldandi uppbyggingarstarf alþjóðastofnana í Kósóvó mikilvægt, en Íslendingar leggja sitt af mörkum til þess.
Á vegum Íslensku friðargæslunnar fer Íslendingur fyrir skrifstofu Evrópuráðsins í Kósóvó, auk þess sem fulltrúar UNIFEM standa að verkefnum þar og í nágrannaríkjunum og Flugmálastjórn hefur eftirlit með gæðamálum flugvallarins í höfuðborginni Pristína.
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson UItanríkisráðherra endanlega afskrifar öryggisráðið -
Alexander Kristófer Gústafsson Var ég spurður ? En þú? -
Magnús Helgi Björgvinsson Fyrir þá sem halda að Serbía hafi ráðið Kósóvó hér ...
Innlent »
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 21. október 2007, Innlent Utanríkisráðherra heiðursfélagi í samtökum kvenna
- Föstudagur, 8. júní 2007, Innlent Framboðið til Öryggisráðsins er norrænt samstarfsverkefni
- Mánudagur, 18. febrúar 2008, Innlent Ekki hefur verið tekin afstaða til Kosovo
- Fimmtudagur, 21. febrúar 2008, Innlent Verður að tryggja mannréttindi
- Laugardagur, 8. desember 2007, Innlent Móta þarf afstöðu Íslands til Kosovo
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur



































