Flotinn að veiðum á Faxaflóa
Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is
Loðnuveiðar standa nú sem hæst og er veiðin á Faxaflóa. Í gær hafði um helmingur loðnukvótans verið veiddur, eða um 75.000 tonn. Gera má ráð fyrir að vertíðin standi eitthvað fram eftir mánuðinum.
„Við vorum bara að koma á Faxaflóann og vorum að klára að dæla fyrsta kastinu, um 350 tonnum,“ sagði Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni SU 111, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Þá voru um sjö skip á bleyðunni. „Það eru alltaf margir á siglingu eða að landa og allir að keppast við að veiða fyrir hrognatöku. Loðnan núna er alveg að detta í hrygningu. Það er mjög stutt í það og orðið laust í henni. Mjög góð loðna og hentar mjög vel í hrognin. Við löndum alltaf heima á Eskifirði, en erum reyndar í síðasta túr. Kvótinn hjá Eskju er að klárast og Aðalsteinn Jónsson SU á eftir einn túr. Þá förum við á kolmunna,“ segir Grétar.
Hann segir að verðið á hrognunum sé gott núna og því sé þokkalegt upp úr þessu að hafa.
„Bátarnir eru svolítið dreifðir um Faxaflóann og það virðist vera nóg enn af loðnu. Við erum hérna með þeim syðstu. Þetta er bara eins og maður hefur oft séð þetta áður. Hvorki meira né minna,“ sagði Grétar og var ánægður með blíðuna í gær.
Skipin eru öll að veiðum úr fremsta hluta göngunnar, en þar eru hrognin í loðnunni mest þroskuð og henta vel fyrir markaðinn í Japan. Enginn er því enn að veiða úr seinni göngunni en menn fylgjast með henni á ferðum sínum austur og vestur með Suðurlandinu. Enn virðist ekkert bóla á vestangöngu, en menn gera sér þó vonir um að loðnan komi þaðan líka, en þá hrygnir hún mest á Breiðafirðinum. Gangan að vestan kemur venjulega seinna en sú að austan, komi hún á annað borð.
Innlent »
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. júlí 2008, Innlent Makríll er lottóvinningur
- Föstudagur, 23. febrúar 2007, Innlent Verð á loðnuafurðum í sögulegu hámarki
- Fimmtudagur, 26. febrúar 2009, Innlent Vart við loðnu á Strandagrunni
- Föstudagur, 5. september 2008, Innlent Hrefnukvótinn að klárast
- Laugardagur, 28. febrúar 2009, Innlent Fullfermi af kolmunna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur



































