205 milljóna skíðaskáli

Reisa á 700 fermetra skíðaskála, sem áætlað er að muni kosta um 205 milljónir króna, í Bláfjöllum og er stefnt að verklokum í desember á þessu ári, að sögn Bolla Thoroddsens, formanns íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar, sem standa mun straum af kostnaðinum.

„Bygging þessa skála tengist brottflutningi skíðadeilda Víkings og ÍR af Hengilssvæðinu. Við keyptum mannvirkin þar, tvo fasta skála, tvo dagskála og skíðalyftur, fyrir um 40 milljónir króna. Síðan seldum við Orkuveitu Reykjavíkur föstu skálana fyrir 25 milljónir króna. Kostnaður vegna skíðastarfseminnar á Hengilssvæðinu nam um 15 milljónum króna á ári þannig að sú upphæð sparast til framtíðar,“ segir Bolli.

Nýi skálinn, sem verður á milli Breiðabliksskálans og Ármannsskálans, er eiginlega tveir sambyggðir skálar fyrir Víking og ÍR, að því er Bolli greinir frá. „Það munu 25 manns geta gist í risi hvors skála. Á fyrstu hæð verður eldhús, veitingasalur og aðstaða fyrir gesti og gangandi eins og í Bláfjallaskálanum.“

Snjóframleiðsla fyrir lok ársins

Að sögn Bolla verða reistar fleiri snjógirðingar á Bláfjallasvæðinu samtímis því sem stefnt er að því að koma upp snjóframleiðslukerfi. „Það eru vonir okkar að snjóframleiðsla hefjist í lok þessa árs.“

Benedikt Geirsson, formaður stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, segir sveitarfélögin sjö sem reka skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli eiga í viðræðum við Orkuveitu Reykjavíkur um vatnsöflun. „Orkuveitan myndi sjá um vatnsöflun og flutninginn á vatninu í brekkurnar og leggja þær lagnir sem þarf vegna flutningsins. Orkuveitan myndi jafnframt útvega stútana. Sveitarfélögin myndu svo kaupa vatn og rafmagn af Orkuveitunni,“ segir Benedikt.

Bora þarf eftir vatni

Eiríkur Hjálmarsson, blaðafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur, segir að bora þurfi eftir vatni í Bláfjöllum þar sem þar sé ekkert yfirborðsvatn. „Væntanlega er ekki þörf á því á Skálafellssvæðinu,“ segir Eiríkur.

Formaður íþrótta- og tómstundaráðs segir endanlegan kostnað vegna snjóframleiðslu ekki liggja fyrir.

Í hnotskurn
Skíðadeildir íþróttafélaganna sinna barna- og unglingastarfi á skíðasvæðunum. Á skíðasvæðunum eru starfræktar skíðaleigur þar sem gestir svæðanna geta leigt sér allan búnað.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara pening og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar Mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu þessi flotta vespa 125c
Ekinn 780 km. skoðuð án ath-semda 2012 og mjög vel með farinn. Nú er tækifærið a...
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
Óska eftir 4 herbergja íbúð á svæði 108 til leigu
Kæru íbúðaeigendur. Við fjölskyldan erum að leita að leiguíbúð í nágrenni Rétta...
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
 
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...