Íshlutir: Einfaldara að gefa upp verð í evrum

Undanfarið hefur verið mikil umræða í samfélaginu um mögulega upptöku evru og kosti og galla krónunnar. Það vakti því athygli í síðustu viku þegar fyrirtækið Íshlutir auglýsti vinnuvélar til sölu og verðið var uppgefið í evrum. Hjálmar Helgason, framkvæmdastjóri Íshluta, segir að það sé mun einfaldara fyrir viðskiptavini og fyrirtækið sjálft að gefa upp verð í evrum þar sem miklar sveiflur séu á gengi krónunnar.

„Nýjar vélar eru allar seldar miðað við ákveðið gengi í evrum. Þær vélar sem við tökum upp í sem hlutfall af nývirði markast af evrunni en eins og efnahagslífið er um þessar mundir er eiginlega ekki hægt að gefa upp verð í íslenskum krónum,“ segir Hjálmar og tekur dæmi til að útskýra mál sitt betur: „Til dæmis auglýsa Íshlutir vinnuvél á tíu milljónir íslenskra króna, miðað við að gengi evrunnar sé 100. Þegar viðskiptavinur vill kaupa vélina gæti gengi evrunnar verið orðið 105 en þá hefði vélin átt að kosta 10,5 milljónir í stað 10 milljóna. Það er því miklu auðveldara fyrir alla að auglýsa vélarnar í evrum.“

Minni gengisáhætta

Þrátt fyrir að vélarnar séu auglýstar í evrum borga flestir fyrir þær í íslenskum krónum en Hjálmar segir þó að það sé ekkert mál að greiða í evrum, ef vilji er fyrir hendi. „Fljótlega munum við fara að selja í evrum og sendum þá fjármögnunarfyrirtækjunum reikninga í erlendri mynt. Þetta gerum við til að minnka gengisáhættuna fyrir Íshluti og viðskiptavininn. Við sinnum flestum okkar viðskiptum í evrum, það er það stór hluti af okkar tekjum í beinum tengslum við erlenda gjaldmiðla því við borgum í evrum fyrir megnið af vélunum sem við kaupum.“ Hjálmar segir að fyrirtækið hafi samt sem áður ekki alltaf stundað viðskipti sín Með evrum. „Allt verð er miðað við erlendan gjaldmiðil og af því að sveiflurnar eru svo miklar núna er einfaldara að gefa upp verð í evrum. Við erum ekki eina fyrirtækið sem hefur gefið upp verð í evrum enda er þetta eina leið okkar til að koma með eitthvert mótvægi við sveiflur gengisins. Ef viðskiptavinur kemur í dag og vill fá tilboð í nýja vél, þá fær hann það í evrum ásamt virðisaukaskatti.“

Einfaldari fjármálastjórnun

Aðspurður hvaða áhrif það hefði á rekstur fyrirtækisins ef skipt yrði um gjaldmiðil á Íslandi og evran tekin upp segir Hjálmar að öll fjármálastjórnun yrði mun einfaldari. „Við myndum þá losna við allar þessar sveiflur því að í starfsemi okkar fyrirtækis er útflutningur á notuðum vélum mjög mikilvægur. Við seljum vélar okkar helst í gegnum Evrópu og fáum greitt í evrum. Það yrði til mikillar einföldunar að vera á sama myntsvæði og flestir af birgjum okkar,“ segir Hjálmar og bætir við að Íshlutir bjóði upp á gott verð, en það komi þó evrunni ekki við. „Það hvernig fyrirtækið er rekið gerir okkur kleift að bjóða gott verð á vinnuvélum. Okkar innkaupsverð er mjög áþekkt innkaupsverði samkeppnisaðilanna en aftur á móti rekum við fyrirtækið með töluvert minni kostnaði en aðrir. Þar af leiðandi getum við leyft okkur lægra verð.“
Í hnotskurn
Íshlutir voru stofnaðir árið 1998 en árið 2006 flutti fyrirtækið í 1.500 m 2 húsnæði í Mosfellsbæ. Íshlutir hafa síðan þá vaxið úr fjögurra manna fyrirtæki í 30 manna fyrirtæki sem er leiðandi í innflutningi á vinnuvélum. Íshlutir hafa yfir að ráða 4 fullbúnum viðgerðarbílum sem eru stöðugt á ferðinni um landið.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »
Úr safni.

Átak gegn ölvunarakstri

15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GARÐSKÁLI GEYMSLUR GESTAHÚS
Garðskáli - geymslur - gestahús Vönduð hús ú...
www.flutningur.is 5753000 sendibilastöð
Stöðin býður upp á allar stærðir sendibíla og veitir trausta og umfram allt góð...
Stóll á reiðhjól
Til sölu þessi stóll. Hann er nánast ónotaður . Bleikur hjálmur getur fylgt. Ver...
Fjarnámskeið á tilboði -aðeins 9.900 kr.
Lærðu ljósmyndun á Netinu. Á fjarnamskeid.is er hægt að læra allt um ljósmyndun,...
 
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....