Einn dæmdur og tveir sýknaðir af ákæru fyrir árás á lögreglu
Héraðsdómur Reykjavíkur mbl.is/Þorkell
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt einn erlendan karlmann í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á lögreglumenn sem voru við skyldustörf á Laugavegi í Reykjavík í janúar. Tveir aðrir erlendir menn voru sýknaðir í málinu. Mennirnir sátu allir um tíma í gæsluvarðhaldi og sættu síðan farbanni.
Málavextir voru þeir, að fjórir lögreglumenn, óeinkennisklæddir og á vegum fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu höfðu afskipti af tveimur karlmönnum og einni konu vegna gruns um fíkniefnamisferli fyrir utan veitingastaðinn Monte Carlo við Laugaveg í Reykjavík í janúar.
Lögreglumennirnir báru, að þeir hefðu verið að ræða við fólkið þegar þeir sáu hvar tveir bílar voru stöðvaðir og út úr öðrum steig kona, sem gekk að lögreglumönnunum. Var henni kynnt að um lögregluaðgerð væri að ræða og hún beðin um að trufla ekki störf lögreglu. Í sömu andrá hafi fimm karlmenn veist að lögreglumönnunum með höggum og spörkum og ekki hætt þótt lögreglumennirnir sýndu þeim lögregluskírteini.
Í dómnum segir, að svo virðist sem einn erlendu mannanna og konan, sem var með þeim í öðrum bílnum, hafi túlkað aðgerðir lögreglumannanna sem árás á hina konuna og farið út úr bílnum í þeim tilgangi að hjálpa henni.
Dómurinn taldi sannað að einn mannanna hefði slegið tvo lögreglumenn. Hins vegar taldi dómurinn að ekki hefði komið fram lögfull sönnun á að mennirnir þrír hefðu slegið þriðja lögreglumanninn. Er m.a. vísað til þess að tveir félagar mannanna hefðu einnig verið á vettvangi en þeir voru ekki ákærðir.
Mennirnir báru að þeir hefðu ekki gert sér grein fyrir að það voru lögreglumenn sem þeir réðust á. Segir dómurinn, verulegur vafi leiki á því hvort manninum, sem fundinn var sekur, hafi mátt vera ljóst að um var að ræða lögreglumenn þegar hann sló þá.
Maðurinn var ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni en dómurinn sakfelldi hann fyrir líkamsárás.
Bloggað um fréttina
-
Reynir W Lord Eruð þið ekki að grínast. -
Birna Dis Vilbertsdóttir Þetta er fáránlegt.Hverskonar skilaboð er verið að senda útí þjóðfélagið? -
Ásgrímur Hartmannsson Hver eru nákvæmlega málsatvik? -
Halldór Egill Guðnason Gamli Staði Gráni. -
Jens Ólafsson Sekur þar til sakleysi sannast? -
Gísli Birgir Ómarsson ÞIÐ ÆTTUÐ AÐ SKAMMAST YKKAR.... -
Sigurður Þórðarson Dóminum verður að áfrýja! -
argur Sófadómararnir mættir -
Katrín Ósk Adamsdóttir Skammarleg niðurstaða
Innlent »
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 13. mars 2008, Innlent Kurr í lögreglumönnum
- Fimmtudagur, 18. desember 2008, Innlent Dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumenn
- Þriðjudagur, 5. febrúar 2008, Innlent Menn sem réðust á lögreglu í farbanni
- Föstudagur, 11. janúar 2008, Innlent Ráðist á lögreglumenn
- Föstudagur, 11. janúar 2008, Innlent „Algjörlega óviðunandi"
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...




































