Fékk barka í skrúfuna

Fossá ÞH 362 er gerð út frá Þórshöfn á Langanesi.
Fossá ÞH 362 er gerð út frá Þórshöfn á Langanesi. mbl.is/þorgeir Baldursson

Skelveiðiskipið Fossá ÞH362 fékk barka í skrúfuna austan við Langanes klukkan hálf fimm í nótt og bíður nú aðstoðar á Eiðisvík. Tveir björgunarsveitarbátar eru á leið til að draga Fossána til lands. „Það er fínt veður þarna og þeir létu bæði plóginn og ankeri falla til að halda sér stöðugum," sagði vaktstjóri Landhelgisgæslunnar í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins.

Fossá er 250 lesta skip og eru fjórir menn um borð en ekkert hættuástand hefur skapast.

Björgunarbátarnir Sveinbjörn Sveinbjörnsson frá Vopnafirði og Gunnbjörg frá Raufarhöfn stefna nú á slysstað og er reiknað með að þeir nái þangað um klukkan hálf átta. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert