Lokaði sig inni með haglabyssu

Sérsveit lögreglunnar var kölluð að húsi í Reykjanesbæ í kvöld.
Sérsveit lögreglunnar var kölluð að húsi í Reykjanesbæ í kvöld. mynd/Andri Örn Víðisson

Maður lokaði sig inni á salerni með haglabyssu í heimahúsi í Reykjanesbæ í kvöld og hótaði að skaða sig. Sérsveit lögreglunnar í Reykjavík var kölluð út og náði lögreglan að tala manninn til. Hann var færður á lögreglustöð.

Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum lokaði sérsveitin af svæði í kringum húsið en maðurinn ógnaði engum.

Heimilisfólk bað um aðstoð lögreglu fyrr í kvöld. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert