Segir undirbúning álvers í eðlilegum farvegi
Tölvumynd sem sýnir hvar hugsanlegt álver í Helguvík myndi rísa.
Norðurál segir að undirbúningur álvers í Helguvík gangi samkvæmt áætlun en unnið hafi verið að málinu í mjög góðu samstarfi við sveitarfélög á svæðinu, orkufyrirtæki og opinberar stofnanir og að öllu leyti í samræmi við lög og reglur sem um slíkar framkvæmdir gilda.
Í tilkynningu frá Norðuráli segir, að samningar hafi verið gerðir um svæði fyrir starfsemina, hafnaraðstöðu, orku og orkuflutning. Mati á umhverfisáhrifum sé lokið og búið að breyta aðal- og deiliskipulagi. Byggingarleyfi fyrir álverið var samþykkt í bæjarstjórnum sveitarfélagsins Garðs og Reykjanesbæjar í gær.
Landvernd hefur kært til umhverfisráðherra ákvörðun, sem Landvernd telur að sé fólgin í áliti Skipulagsstofnunar á mati á umhverfisáhrifum fyrir álver í Helguvík. Hinn 22. nóvember sendi umhverfisráðuneytið kæruna til Norðuráls og fleiri til umsagnar. Norðurál segist hafa skilað umsögnum sínum innan þeirra tímamarka sem ákveðin hafi verið með umhverfisráðuneytinu.
Norðurál segir meginefni kærunnar felast í því, að Skipulagsstofnun nýtti ekki heimildarákvæði í lögum um mat á umhverfisáhrifum til þess að meta í einu lagi umhverfisáhrif af öllum framkvæmdum sem kunni að tengjast byggingu álversins. Norðurál segist telja, að vísa hefði átt kæru þessari frá þegar í stað þar sem álitaefni þetta sæti ekki kæru og að kæran sé alltof seint fram komin.
Á árinu 2006 hafi farið fram ítarlegt samráðsferli vegna þessa atriðis að frumkvæði Skipulagsstofnunar með þáttöku Umhverfisstofnunar, orkuframleiðenda, sveitarfélaga og fleiri aðila. Niðurstaða þessa ferlis hafi verið að meta ekki allar framkvæmdir saman.
Í bréfi umhverfisráðuneytisins til Norðuráls frá 22. nóvember, sem fylgdi með kæru Landverndar, segir m.a.: „Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum viðkomandi framkvæmdar, sbr. 11. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum, sætir ekki kæru til ráðherra skv. 1. mgr. 14. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum eins og áður sagði."
Norðurál segir, að þar sem byggingarleyfi byggi á áliti Skipulagsstofnunar verði ekki séð að umrædd kæra hafi nein áhrif á útgáfu byggingarleyfis og hafi Norðurál því haldið áfram vinnu við undirbúning verkefnisins samkvæmt áætlun.
Hitaveita Suðurnesja og Norðurál undirrituðu orkusamning fyrir álver í Helguvík 23. apríl 2007. Þá undirrituðu Orkuveita Reykjavíkur og Norðurál orkusamning fyrir álver í Helguvík 7. júní 2007. Frá þeim tíma hafa Hitaveita Suðurnesja og Orkuveita Reykjavíkur unnið að því að uppfylla skuldbindingar sínar um sölu á orku og er sú vinna á áætlun að sögn Norðuráls.
Landsnet og Norðurál undirrituðu samning um flutning raforku til álversins í Helguvík 3. október 2007. Landsnet hefur síðustu mánuði unnið með sveitarfélögum á Suðurnesjum og víðar að útfærslu flutningsleiða og segir Norðurál að sú vinna sé á lokastigum og ljóst að viðunandi niðurstaða náist. Öll sveitarfélög á Suðurnesjum hafi lýst yfir stuðningi við byggingu álvers í Helguvík.



































