Tvöföldun hefst 2009
Framkvæmdir við tvöföldun Suðurlandsvegar og vinna við jarðgöng undir Vaðlaheiði hefjast á næsta ári. Þetta kom fram í máli samgönguráðherra, Kristjáns Möller, á blaðamannafundi í dag þar sem viðauki við samgönguáætlun var kynntur. Báðar þessar framkvæmdir verða í einkaframkvæmd. Hluti ríkisins verði greiddur með jöfnum árlegum greiðslum í 25 ár eftir að framkvæmdum lýkur.
Gert er ráð fyrir að báðar þessar framkvæmdir hefjist á fyrri hluta árs 2009. Þá felur viðaukinn einnig í sér að framkvæmdum við tengivegi víða um land verður flýtt, auk tiltekinna framkvæmda við hafnir og flugvelli.
Um er að ræða tvöföldun Suðurlandsvegar frá Litlu Kaffistofunni að Hveragerði. Auk samgönguráðherra kynntu þeir Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, þingmaður viðaukann á fundinum.
Í fréttatilkynningu kemur fram að í kjölfar ákvörðunar um niðurskurð þorskkvótans ákvað ríkisstjórnin á síðastliðnu sumri að grípa til mótvægisaðgerða í formi framkvæmda í samgöngumálum til að draga úr áhrifum fyrirsjáanlegs aflasamdráttar. Tilkynnti ríkisstjórnin flýtingu framkvæmda að upphæð 6.500 m.kr. Í ljósi svo mikilla breytinga á samgönguáætlun þótti nauðsynlegt að gera viðauka við samgönguáætlun 2007 – 2010, sem samþykkt var á Alþingi í mars 2007, og gera þar með grein fyrir breytingum á einstökum liðum áætlunarinnar. Viðauki þessi er nú kynntur og verður hann lagður fyrir Alþingi í formi þingsályktunartillögu nú á vorþingi.
Samkvæmt því sem fram kom á fundinum er að byggja nýjan tengiveg að Bakkafjöruhöfn, en samkvæmt áætlunum sem nú eru uppi um hafnargerð þar þarf að leggja veginn á þessu ári.
Bloggað um fréttina
-
Gestur Guðjónsson Peningum kastað út um gluggann í óðagoti -
Jón Ingi Cæsarsson Frábært Kristján L. Möller. -
Sóla Frábært -
G. Tómas Gunnarsson Mynd segir gjarna meira en þúsund orð -
Birgir Þór Bragason Dapurlegt -
Þorkell Sigurjónsson SÁ SEM EKKI FER BATNANDI ER VISS UM AÐ FARA ... -
Ingólfur Slæmt fyrir umferðaröryggið -
Björgvin Guðmundsson Tvöföldun Suðurlandsvegar hefst næsta ár -
Haraldur Haraldsson Tvöföldun hefst 2009,Suðurlandsvegur ók.????? -
Sigríður Jósefsdóttir Hvað með Vestfirði? -
Gunnar Th. Gunnarsson Gott mál, en.... -
Eyþór Arnalds Til hamingju Sunnlendingar - til hamingjar Íslendingar
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 13. mars 2008, Innlent 11 milljarðar í framkvæmdir
- Fimmtudagur, 13. mars 2008, Innlent Ný göng og tvöföldun
- Fimmtudagur, 13. mars 2008, Innlent Ný göng og tvöföldun
- Þriðjudagur, 12. ágúst 2008, Innlent Sveitarfélög tefja vegabætur
- Þriðjudagur, 10. júlí 2007, Innlent Samgönguráðherra: fjármagn flutt til sem var þegar á samgönguáætlun
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































