„Heilbrigðiskerfinu gerbylt án umræðu á þingi"
eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is
Það er verið að gerbylta heilbrigðiskerfinu án umræðu á Alþingi, sagði Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, í upphafi þingfundar í gær og vísaði til einkavæðingar. Sagði hún heilbrigðisnefnd þingsins varla haft nokkur mál að vinna að í vetur. „Heilbrigðisráðherra leggur sig fram um að vera sem minnst hér og maður fréttir bara úti í bæ hvað verið er að gera,“ sagði Valgerður.
Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, hóf máls á þessu og var mjög ósáttur við að utandagskrárumræða um útvistun á rekstri hjúkrunardeildar Landspítalans, sem hann óskaði eftir í lok febrúar, skyldi ekki vera á dagskrá Alþingis áður en páskaleyfi hófst. Stjórn þingsins hafi heimilað þá umræðu en heilbrigðisráðherra hafi neitað. „Hvað veldur því að hæstvirtur ráðherra neitar því að taka þessa umræðu? Treystir hann sér ekki til þess?“ spurði Ögmundur og flokkssystir hans, Kolbrún Halldórsdóttir, tók undir og áréttaði að utandagskrárumræður ættu ekki að vera á forsendum ráðherra heldur þingmanna.
Stjórnarandstöðuskóli Marðar
Stjórnarliðar blésu á þetta og Merði Árnasyni, Samfylkingu, þótti ekki mikið til stjórnarandstöðunnar koma að velja að „þrasa um utandagskrárumræður“ fremur en að ræða t.d. skattamál, samgöngumál eða áform um álversbyggingu í Helguvík. Stakk hann upp á því að komið yrði á fót stjórnarandstöðuskóla til að kenna stjórnarandstæðingum hvernig ætti að veita heilbrigða og lýðræðislega stjórnarandstöðu. „Og ég skal vera skólastjóri í þeim skóla,“ sagði Mörður.Innlent »
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 9. september 2008, Innlent Sjúkratryggingar til umræðu
- Föstudagur, 3. apríl 2009, Innlent Harðar deilur á Alþingi
- Laugardagur, 4. apríl 2009, Innlent Valgerður kvaddi
- Þriðjudagur, 10. mars 2009, Innlent Fjórða stigs málþóf
- Fimmtudagur, 19. febrúar 2009, Innlent Guðlaugur vildi ekki ofurlaun lækna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur



































