Fjögurra ára stúlka féll niður rúllustiga

Fjögurra ára stúlka féll niður af handriði rúllustiga í verslun Rúmfatalagersins á Akureyri rétt fyrir hádegi í dag.  Að sögn lögreglunnar á Akureyri féll stúlkan niður um tæpa 6 metra á teppalagt gólf. 

Lögregla og sjúkralið voru kölluð út en að sögn lögreglu er ekki  vitað um líðan stúlkunnar að svo stöddu, en hún var flutt á slysadeild til aðhlynningar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert