Þoldi ekki að tapa í sjómanni


Tíu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en nær allar voru þær minniháttar. Nokkrir þurftu samt að leita sér aðhlynningar á slysadeild en fáeinir árásarþolar sátu eftir með skurð á höfði.

Að sögn lögreglu hafði einn þeirra, sem fóru á slysadeild, farið í sjómann við annan mann á krá í miðborginni og haft betur. Sá sem tapaði tók því illa og svaraði fyrir sig með fyrrgreindum afleiðingum.

Þrjár þessara tilkynntu líkamsárása áttu sér stað utan miðborgarinnar, þar af ein í heimahúsi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert