Höfuðstóllinn hækkar hratt við 25% gengisfall

mbl.is

Höfuðstóll erlends láns upp á 20 milljónir sem tekið var fyrir einu ári hefur hækkað um 4,5 milljónir kr. Ástæðan er sú að gengi krónunnar hefur lækkað um 25% á þessu eina ári. Greiðslubyrðin hefur einnig þyngst verulega; farið úr 133 þúsundum á mánuði í 164 þúsund.

Gengislækkun krónunnar hefur strax áhrif á greiðslubyrði af erlendum lánum en greiðslan miðast við stöðu gengis á gjalddaga. Greiðslubyrðin getur því sveiflast um nokkra tugi þúsunda milli mánaða. Erfitt er að spá því hver þróun gengis verður á næstu vikum en það er auðvitað hugsanlegt að lækkunin síðustu daga gangi til baka á næstu vikum eða mánuðum. Gengið gæti einnig haldið áfram að falla.

Gengið hefur einnig áhrif á höfuðstólinn. Margir sem tekið hafa erlend lán hafa séð höfuðstólinn lækka umtalsvert samhliða styrkingu gengis. Nú er staðan gerbreytt. Gengisvísitalan hefur aldrei verið hærri og því er gengisávinningur þeirra sem tekið hafa erlend lán horfinn. Skiptir þá engu máli hvenær lánið var tekið.

Bílalánið orðið hærra en verðmæti bílsins

Fjármálastofnanir hafa gert strangari kröfur um veð þegar tekin eru erlend lán. Það er því ólíklegt að mörg dæmi séu um að fólk, sem er eingöngu með erlent lán. sé komið í þá stöðu að höfuðstóll lánsins sé orðinn hærri en verðmæti fasteignarinnar. Fullyrða má hins vegar að mörg dæmi séu um að höfuðstóll erlendra bílalána sé orðinn hærri en verðmæti bílsins. Þar er hins vegar um mun lægri upphæðir að ræða en í fasteignalánunum. Áhætta af erlendum lánum eykst verulega þegar lánin eru til skamms tíma. Þótt hér hafi fyrst og fremst verið horft á sveiflu á einu ári er nauðsynlegt að hafa í huga að fasteignalánin eru tekin til margra ára og þeir sem taka lánin hljóta að hafa reiknað með að gengið myndi sveiflast umtalsvert á lánstímanum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert