Þingvellir af heimsminjaskrá?

Þingvellir eru á heimsminjaskrá UNESCO.
Þingvellir eru á heimsminjaskrá UNESCO. mbl.is/Sverrir.

Til greina kemur að setja Þingvallaþjóðgarð á lista UNESCO yfir heimsminjar í hættu, vegna lagningar nýs vegar milli Þingvallavatns og Laugarvatns.

„Við fylgjumst mjög vel með þessum vegaframkvæmdum og munum mögulega endurskoða stöðu þjóðgarðsins [á heimsminjaskrá UNESCO],“ segir dr. Mechtild Rössler, yfirmaður hjá heimsminjanefnd UNESCO.

Um er að ræða Lyngdalsheiðarveg, sem leggja á í stað vestari hluta Gjábakkavegar. Skipulag framkvæmdarinnar hefur verið samþykkt, en eftir er að bjóða verkið út.

Yfirvöld fá gula spjaldið

„Það er augljóslega verið að gefa samgönguyfirvöldum gula spjaldið,“ segir Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar, um orð dr. Rösslers.

Hann bendir á að nýi vegurinn færi umferðina nær Þingvallavatni og viðkvæmum hrygningarsvæðum. Auk þess megi búast við stóraukinni umferð um þjóðgarðinn með lagningu þjóðvegar með 90 km hámarkshraða milli Laugarvatns og Þingvallavatns.

Vill frekar laga gamla veginn

„Okkar fyrsti kostur væri að núverandi vegur yrði einfaldlega lagfærður,“ segir Bergur. „Hann yrði áfram ferðamannavegur og hraðinn ekki hækkaður upp í 90 km á klukkustund, heldur mætti taka af honum mestu hlykkina og fjölga útskotum þannig að ferðamenn fengju notið útsýnisins.“

Heimsminjanefnd Íslands hefur einnig lagst gegn lagningu Lyngdalsheiðarvegar og lagt til við Vegagerðina að umferð verði frekar beint suður fyrir Þingvallavatn.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður haldið áfram með verkið þrátt fyrir aðvaranir frá UNESCO, nema annað yfirvald gefi út fyrirmæli um að stöðva það.

Hvorki náðist í Kristján Möller samgönguráðherra við vinnslu fréttarinnar, né Björn Bjarnason, formann Þingvallanefndar.

Í hnotskurn
851 staður er skráður á heimsminjaskrá UNESCO. Þingvallaþjóðgarður er eini staðurinn á Íslandi sem er á heimsminjaskránni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert