Umferðarslys á Kringlumýrarbraut

Kringlumýrarbraut var lokað eftir slysið.
Kringlumýrarbraut var lokað eftir slysið. mbl.is/Júlíus

Umferðarslys varð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík rétt sunnan við Listabraut laust fyrir klukkan 22 í kvöld. Litlar upplýsingar var að fá hjá lögreglunni utan að mótorhjól átti í hlut og slysið var alvarlegt.

 Lögreglan var að störfum á slysstaðnum laust fyrir klukkan 22:30 og hafði götunni verið lokað á kafla.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður þá, sem kunna að hafa orðið vitni að slysinu, að hafa samband í síma 444-1000.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert