Sex enn leitað vegna árásar í Breiðholti

mbl.is/Július

Að minnsta kosti sex manna er enn leitað í tengslum við húsbrot og líkamsárás í Breiðholti í dag. Samkvæmt upplýsingum lögreglu réðust um tíu menn vopnaðir bareflum og öxum inn í íbúð þar sem hópur manna var fyrir.

Réðust þeir að mönnunum sem fyrir voru í íbúðinni og voru sjö þeirra fluttir á slysadeild til aðhlynningar eftir árásina. Enginn mun vera í lífshættu en nokkrir mannanna eru með slæm sár og beinbrot. 

Í kjölfar árásarinnar flýðu árásarmennirnir af vettvangi í nokkrum bílum og fór lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fram á aðstoð lögreglu á Suðurnesjum við að beita þeim eftirför. Einn bíll var stöðvaður við Strandaheiði og voru fjórir menn sem í honum voru handteknir grunaðir um aðild að árásinni.

Annarra árásarmanna er enn leitað en ekki liggur nákvæmlega fyrir hversu margir þeir eru.  Samkvæmt upplýsingum lögreglu er rannsókn málsins á frumstigi og liggja upplýsingar um aðdraganda árásarinnar ekki fyrir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert