Talsverð óvissa um hvað sé framundan í byggingariðnaðinum
mbl.is
Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is
„Ef þú spyrð um framtíðina þá er maður bara eitt spurningarmerki. Ef bankarnir verða áfram lokaðir fram eftir þessu ári þá byrjum við ekki á þeim verkefnum sem við höfum undirbúið, a.m.k. ekki á þeim tíma sem við höfum planað.“ Þetta segir Bjarni Þór Einarsson, fjármálastjóri hjá byggingarfyrirtækinu Sveinbirni Sigurðssyni, um stöðuna á byggingarmarkaðinum.
Almennt er verkefnastaðan hjá byggingarverktökum sem Morgunblaðið ræddi við góð, en óvissa er um framtíðina ef lausafjárstaða bankanna lagast ekki og gengislækkun krónunnar gengur ekki til baka.
Sveinbjörn Sigurðsson hefur mest verið í útboðsverkum, en minna í byggingu á íbúðarhúsnæði. Bjarni sagði að verkefnisstaða fyrirtækisins væri góð og ekki stæði til að fækka starfsfólki. Framtíðarverkefni réðust mikið af stöðunni hjá bönkunum, sem væru lokaðir í dag. Fá fyrirtæki gætu farið út í stórverkefni í dag nema að fá lánafyrirgreiðslu hjá bönkunum.
ÍAV hf. hefur verið að bæta við sig mannskap að undanförnu, en fyrirtækið er aðalverktaki við byggingu tónlistarhúss í miðborg Reykjavíkur. Eyjólfur Guðmundsson, sölu- og markaðsstjóri hjá ÍAV, segir að fyrirtækið sjái fram á aukna veltu á þessu ári. „Það er hins vegar eitthvað að hægja á umsvifum í byggingu íbúðarhúsnæðis. Við erum að fara seinna af stað með verkefni á þeim markaði. Það er samt hreyfing á markaðinum, en það er rólegra,“ sagði Eyjólfur.
Byggingarfyrirtækin tapa
á gengisbreytingum
Loftur Árnason, framkvæmdastjóri Ístaks, sagðist aðeins finna fyrir því að menn væru farnir að fresta nýjum verkum. Verkefnastaða fyrirtækisins væri hins vegar góð þessa stundina og útlitið ágætt. Ístak hefur ekki verið mikið í íbúðabyggingum, en meira unnið fyrir opinbera aðila og stærri fyrirtæki. Fjárfestingar opinberra aðila væru talsvert miklar í ár. Hann sagðist hins vegar reikna með að staðan í fjármálalífi landsmanna hefði áhrif hjá Ístaki ef staðan batnaði ekki.
„Þessar gengisbreytingar koma verulega illa við okkur því þetta hefur í för með sér verulegar hækkanir og kostnaðarauka á þá samninga sem eru í gangi. Þetta hefur því slæm áhrif á byggingarmarkaðinn allan. Það má segja að þetta sé meiriháttar áfall ef gengið helst í þessum hæðum,“ sagði Loftur. Hann sagði að fyrirtækið yrði að taka á sig tap þar sem það gæti ekki velt kostnaðarhækkunum yfir á kaupanda þegar búið væri að ganga frá bindandi samningum.
Óskar Jónsson, framkvæmdastjóri hjá SG-húsum hf. á Selfossi, sagði að það væri mikið að gera hjá fyrirtækinu, en viðurkenndi um leið að það væri ekki eins mikið og á sama tíma í fyrra. Þá hefði eftirspurnin verið slík að afgreiðslufrestur einingaverksmiðjunnar hefði verið kominn upp í 12 mánuði sem væri óeðlilega langur tími.
Óskar sagðist ekki hafa orðið var við að fólk væri að hætta við húsbyggingar. Hann sagði að þó að bankarnir væru mjög tregir að lána væri Íbúðalánasjóður opinn og flestir viðskiptavinir sínir fengju lán þar.
Páll Daníel Sigurðsson, forstöðumaður framkvæmdasviðs Eyktar hf., sagði að verkefnisstaða fyrirtækisins væri góð og það hefði ekki áform um að fækka starfsfólki. „Hlutirnir gerast hins vegar hratt þessa dagana. Við erum markvisst að vinna í því að bæta okkar verkefnisstöðu þannig að við náum að halda sjó.“
Páll sagði að Eykt væri ekki með stór verkefni í íbúðabyggingum þessa stundina. Fyrirtækið væri að vísu að byrja á tveimur blokkum við höfnina í Hafnarfirði og myndi ljúka því. Hann sagði að þó að bankarnir væru að draga saman útlán þyrftu þeir að standa við skuldbindingar sem þeir hefðu gefið. Eykt keypti nýverið Blikastaðaland í Mosfellsbæ, en Páll sagði að það ætti eftir að vinna mikla skipulagsvinnu þar og staðan á markaðinum núna hefði engin áhrif á byggingarframkvæmdir þar.
Páll sagði að gengislækkun krónunnar hefði slæm áhif á byggingariðnaðinn. Almennt væru samningar um verk sem tækju eitt ár eða skemmri tíma ekki verðtryggðir og því þyrftu byggingarfyrirtækin að taka á sig tap vegna þeirra.




































