Segir hækkun bera vott um ákveðna taugaveiklun
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir hækkun stýrivaxta nú bera vott um ákveðna taugaveiklun hjá Seðlabanka Íslands. Aðspurður um hvort þetta hafi ekki verið viðbúið þá segir hann það svo vera miðað við hvernig bankinn hugsar. Hann telji þetta hins vegar ekki rétt viðbrögð sem skapi meiri ótrúverðugleika íslensks efnahags- og fjármálalífs.
„Krónan er komin allt of lágt niður og hún mun hækka aftur og hefði gert það án þessarar vaxtahækkunar. Ég held því að þessi vaxtahækkun sé mjög misráðin," segir Vilhjálmur.
Hvað varðar kjarasamninga þá segir Vilhjálmur að menn hafi verulegar áhyggjur af þessari þróun og verðbólgunni. Það sé brýnt að hún lækki.
„Það skiptir miklu máli að halda sér fast og draga djúpt inn andann. Þessi sveifla niðurávið nú er jafn vitlaus og þegar sveiflan var upp á við og gengisvísitalan fór í 110," segir Vilhjálmur.
Segir Vilhjálmur að allar sveiflur á gjaldeyrismörkuðum séu mjög slæmar fyrir íslenskt atvinnulíf en hann telji að ástandið sem nú ríkir sé ekki eitthvað sem er komið til að vera. „En fyrir alla sem skulda í erlendum gjaldmiðlum, það er hafa verið að kaupa inn erlendum gjaldmiðlum og selja í krónum, hafa orðið fyrir verulegu áfalli nú líkt og þegar gengið hækkaði þá var staðan erfið fyrir þau fyrirtæki sem voru með kostnað í krónum en tekjur í erlendum gjaldmiðlum," segir Vilhjálmur.
Vilhjálmur segir að Seðlabankinn sjái hins vegar aldrei neina aðra leið færa aðra en að hækka vextina.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 25. október 2008, Innlent Vaxtahækkun sennileg
- Fimmtudagur, 11. október 2007, Innlent „Hugur í Húsvíkingum“
- Miðvikudagur, 28. nóvember 2007, Innlent Almennar launahækkanir ekki réttlætanlegar
- Fimmtudagur, 15. janúar 2009, Innlent 30% fyrirtækja í hættu
- Miðvikudagur, 15. október 2008, Innlent Komnir á rétta braut
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































