Áhrif vaxtahækkunarinnar: Heimilum blæðir
„Mér líst mjög illa á ástandið. Gjaldþrot blasa við fjölda heimila og ríkisstjórnin, sem á að gæta hagsmuna almennings, verður að grípa inn í ef heimilin í landinu eiga ekki hreinlega að flosna upp.“
Með þessum orðum lýsir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, því hvernig boðaðar verðhækkanir á matvöru upp á allt að 20% blasa við honum.
Um stýrivaxtahækkun Seðlabankans, úr 13,75% í 15%, sem tilkynnt var í gær, segir Jóhannes: „Enn er höggvið í sama knérunn. Á að láta heimilunum í landinu blæða út? Þetta eru mjög neikvæðar fréttir fyrir neytendur, þannig að ekki skánar ástand heimilanna.“
Hann segir að á móti styrkingu á gengi krónunnar og lækkun verðbólgu, sem stefnt er að með stýrivaxtahækkuninni, vegi að nú muni heimilin þurfa að greiða enn hærri vexti fyrir lán sín. „Ég sé því ekki að þetta sé lausnarorðið.“
Stýrivaxtahækkun velt út í verðlag
Finnur Árnason, forstjóri Haga sem reka meðal annars verslanir Bónuss, Hagkaups og 10-11, tekur undir með Jóhannesi að stýrivaxtahækkun Seðlabankans muni ekki gagnast neytendum.„Aukinn kostnaður á fyrirtæki, hvort sem það er vaxtakostnaður eða annar kostnaður, kemur til með að hafa áhrif á verðlag. Að sama skapi kemur stýrivaxtahækkunin til með að hafa slæm áhrif á ráðstöfunartekjur heimilanna. Sú vaxtabyrði sem fyrirtæki og heimilin bera er allt of mikil og stýrivextir einir og sér ráða ekki við verðbólguna,“ segir Finnur.
Hann segist gera ráð fyrir hækkun á innfluttri matvöru upp á allt að 20%. Undir það tekur Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri Kaupáss sem meðal annars rekur verslanir Nóatúns, Krónunnar og 11-11. Heimsmarkaðshækkun á hráefnisverði, ásamt lækkun á gengi krónunnar, skiptir þar mestu, segja þeir.
Talsmenn bænda sem 24 stundir ræddu við telja einnig óhjákvæmilegt að innlendar landbúnaðarafurðir hækki í verði. Aðföng hafi hækkað verulega, bæði vegna breytingar á heimsmarkaðsverði og eins vegna gengisþróunar, sem hækki enn aðföng. Þá hafi nýgerðir kjarasamningar áhrif til hækkunar. Sagði einn þeirra líklegt að hækkunin yrði ekki undir 20%.
Í hnotskurn
Snörp hækkun stýrivaxta í gær hafði jákvæð áhrif á hlutabréfamarkaðinn, sem hefur aldrei hækkað meira á einum degi. Gengi krónunnar hækkaði einnig um 3,56%. Evran kostaði þannig um 118 krónur í gær, en fór í yfir 122 krónur fyrir páska. Í desember sl. kostaði evran hins vegar í kringum 90 krónur.Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson Hvers vegna er krónan látin fljóta svona áfram ? -
Hallur Magnússon #9541 Vaxtahækkun Seðlabanka bara bull og vitleysa? -
Björgvin Guðmundsson Neytendasamtökin: Á að láta heimilunum blæða út? -
Pétur Þór Guðjónsson Ísland Bezt Í Heimi! -
Haraldur Bjarnason Allir á einu máli um afleiðingar
Innlent »
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 8. apríl 2008, Innlent Mikið kvartað undan verðlagi
- Miðvikudagur, 11. apríl 2007, Innlent Danól boðar allt að 15% verðhækkun á matvöru
- Föstudagur, 4. apríl 2008, Innlent Rætt um leiðir til að vinna á verðbólgu
- Fimmtudagur, 2. október 2008, Innlent „Nú þarf að bjarga heimilunum og það strax“
- Miðvikudagur, 14. janúar 2009, Innlent Hagsmunasamtök heimilanna stofnuð
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...



































