Steingrímur ræður sér aðstoðarmann

Finnur Dellsén.
Finnur Dellsén.

Finnur Dellsén hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri-grænna.

Finnur er 23 ára og heimspekingur að mennt, útskrifaðist með BA-próf í heimspeki frá Háskóla Íslands í fyrra eftir að hafa lokið stúdentsprófi af eðlisfræðibraut Menntaskólans á Akureyri árið 2004. Hann vann áður við fræðslu hjá Orkuveitu Reykjavíkur, og er nú að ljúka störfum sem kennari við Menntaskólann í Reykjavík.

Finnur hefur tekið þátt í pólitísku starfi um árabil, í ungliðahreyfingu Vinstri-grænna ekki síður en í almennu flokksstarfi, og auk þess starfað mikið með Röskvu, samtökum félagshyggjufólks við Háskóla Íslands. Þá hefur hann skrifað fjölmargar greinar í blöð og á vefrit, sér í lagi á vefritið Múrinn. Fyrir síðustu þingkosningar var Finnur einn af þremur kosningastjórum Vinstri-grænna á höfuðborgarsvæðinu og hefur starfað fyrir þingflokk VG frá áramótum.

Í starfi sínu mun Finnur huga sérstaklega að upplýsingamálum, samskiptum við almenning og að styrkja tengslin við ungliðahreyfingu flokksins. Að öðru leyti starfar hann samkvæmt stöðluðum ráðningarsamningi aðstoðarmanna formanna stjórnarandstöðuflokkanna.

Finnur er búsettur í Reykjavík en ólst upp á Akureyri og í Svíþjóð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert