30,1 prósent eiga hlutbréf
Eigendum innlendra hlutabréfa fjölgaði um 20 þúsund milli áranna 2005 og 2006 samkvæmt upplýsingum um skattframtöl einstaklinga sem skilað var árið 2007.
Í byrjun síðasta árs áttu 70.211 af þeim 233.522 sem töldu fram til skatts á Íslandi hlutabréf, eða 30,1 prósent. Árið áður var sá fjöldi 50.211 manns eða 22,1 prósent allra þeirra sem skiluðu framtali.
Engin sjáanleg ástæða
Einar S. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Verðbréfaskráningar Íslands, segist ekki sjá í fljótu bragði að einhver kerfislæg skýring sé á þessari miklu aukningu. Verðbréfaskráningin muni þó skoða málið. „Okkur er ekki kunnugt um ástæðuna fyrir þessu nema þá vegna útgáfu á nýjum bréfum. En það skýrir ekki allan þennan mun.“Aðrir sérfræðingar, sem 24 stundir ræddu við, kunnu ekki skýringar á þessari miklu breytingu á hlutabréfaeign framteljenda á milli ára.
Fleiri eiga í erlendum bréfum
Þá hefur þeim Íslendingum fjölgað gífurlega sem eiga hlutabréf í erlendum fyrirtækjum. Þeir voru 4.800 árið 2005 eða 2,1 prósent allra þeirra sem töldu fram til skatts á Íslandi.Sá fjöldi rauk upp árið 2006 og í lok árs áttu alls 15.434 Íslendingar erlend hlutabréf. Það gera 6,6 prósent allra framteljenda.
Eigendum innlendra hlutabréfa hefur ekki fjölgað jafnmikið milli ára í áratug. Árið 1996 voru hluthafar í innlendum hlutafélögum tæplega 26 þúsund en voru orðnir rúmlega 37 þúsund árið eftir.
Ekki fjölgun við bankasölur
Stærstu hlutafjárútboð Íslandssögunnar fóru síðan fram árið 2002 þegar íslenska ríkið seldi hlut sinn í Landsbanka Íslands annars vegar og Búnaðarbanka Íslands, s íðar Kaupþingi, hins vegar.Þessi tvö útboð fjölguðu þó ekki þeim eigendum innlendra hlutabréfa heldur dróst sá hópur þvert á móti saman um nokkur hundruð manns árið 2002. Af þeim tugum þúsunda, sem skráðu sig fyrir bréfum í bönkunum, voru allmargir sem höfðu lánað kennitölur sínar til annarra fjárfesta og svo virðist einnig sem meiriparturinn hafi selt bréfin fljótlega á nýjan leik.
Þekkir þú til?
Í hnotskurn
Ríkisskattstjóri heldur utan um tölur um hlutabréfaeign einstaklinga og hjóna sem telja fram til skatts. Á skattframtali hvers árs gefur fólk upp hlutabréfaeign sína árið áður.Innlent »
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 30. júlí 2007, Innlent Samanlögð álagning tekjuskatts og útsvars 185,5 milljarðar
- Föstudagur, 18. apríl 2008, Innlent 18.000 skattskussar
- Miðvikudagur, 30. júlí 2008, Innlent 213 milljarðar í skatt
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Framtalsgerð hafin
- Mánudagur, 11. febrúar 2008, Innlent Eignir lífeyrissjóðanna hækkuðu um 9,7% í fyrra
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...



































