Deiliskipulag: Borgin brýtur á borgurunum
„Borgin hefur ítrekað brotið á íbúum með því að hafa þá ekki nægilega með í ráðum þegar kemur að gerð deiliskipulags, þrátt fyrir að henni beri að gera það samkvæmt skipulags- og byggingarlögum.“
Þetta segir Kári Halldór Þórsson, íbúi við Bergstaðastræti í miðborg Reykjavíkur. Hann telur að borgaryfirvöld gangi erinda verktaka á kostnað lögbundinna hagsmuna íbúa.
Deiliskipulag eftir pöntun
„Borgin á að gæta réttar- og eignarréttaröryggis íbúanna en þeim er veittur lágmarks athugasemdafrestur, upplýsingar eru skornar við nögl og tillöguréttur íbúa er vanvirtur. Þá er ósjaldan eins og deiliskipulagið hafi verið unnið eftir pöntun einhvers.“Í fjórðu málsgrein um gerð og framkvæmd skipulags í skipulags- og byggingarlögum segir að við gerð skipulagsáætlana skuli eftir föngum leita eftir sjónarmiðum og tillögum íbúa. Í skipulagsreglugerð segir að leitast skuli við að marka stefnu og áherslur skipulagstillögu í sem mestri samvinnu við íbúa og kynna áform með áberandi hætti, s.s. með auglýsingum, dreifibréfum og fundum og leita eftir skoðunum þeirra varðandi helstu atriði.
„Tillögur og sjónarmið eru mun sterkari en athugasemd. Okkur er alltaf tilkynnt að við höfum einhvern athugasemdarétt en ég hef ekkert fundið um hann í lögunum né hvort þessi réttur sé skilgreint hugtak. Hins vegar ber borginni að hafa samráð við okkur íbúana samkvæmt lögum og það hefur hún vanrækt mikið.“
Máttleysi borgarinnar
Kári gagnrýnir borgaryfirvöld fyrir linkind í garð verktaka sem láti hús standa auð árum saman og opin fyrir útigangsfólki.„Ég veit dæmi þess að íbúum hafi verið hótað að útigangsfólki verði komið fyrir í húsum í nágrenni við þá vilji þeir ekki selja fasteignir sínar. Af hverju er svona mikil tregða hjá borginni að láta loka þessum opnu og auðu húsum? Af hverju þurfa íbúar að standa í því að hringja í lögreglu viku eftir viku út af linkind borgarinnar?“
Í hnotskurn
Sveitarstjórn ber ábyrgð á og annast gerð deiliskipulags. Deiliskipulag skal gera á grundvelli aðalskipulags fyrir einstök svæði eða reiti þar sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar.Innlent »
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 26. mars 2008, Innlent „Grenjavæðing“ miðborgarinnar
- Fimmtudagur, 8. mars 2007, Innlent Deiliskipulag Helgafellsvegar verður auglýst að nýju
- Föstudagur, 11. janúar 2008, Innlent Flytja óreglufólk inn til að gera nágrönnum lífið leitt
- Sunnudagur, 6. janúar 2008, Innlent Gagnrýna skipulagsáform við Baldursgötu
- Föstudagur, 15. júní 2007, Innlent Óánægja með skipulagsmál á Selfossi
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































