Kjölur lagður að varðskipi

Frá athöfninni í Chile í dag.
Frá athöfninni í Chile í dag.

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, var í dag viðstaddur þegar kjölur var lagður að nýju varðskipi Landhelgisgæslunnar í Asmar skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile. Markaði þessi athöfn upphafið að eiginlegri smíði skipsins.

Skipið verður afhent fullbúið á haustmánuðum 2009 og mun það marka þáttaskil í starfsemi Landhelgisgæslu Íslands.

Í ferðinni hefur Björn m.a. átt fund með José Goñi Carrasco, varnarmálaráðherra Chile. Jafnframt heimsótti hann höfuðstöðvar landhelgisgæslu Chile og kynnti sér þar rafrænt eftirlits-, skráningar- og tilkynningarkerfi gæslunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert