Festar loka húsum á Hverfisgötureit
Fasteignafélagið Festar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að félagið hafi að tilmælum slökkviliðsstjóra ákveðið að loka húsum sem það á á svokölluðum Hverfisgötureit eins vel og auðið sé. Aldrei sé hægt að útiloka innbrot í auð hús né heldur hugsanlega íkveikju eða önnur skemmdarverk í þeim og kyrfileg lokun húsanna geti einnig skapað slysagildru.
Yfirlýsingin fer í heild sinni hér á eftir:
Á undanförnum dögum hefur því margsinnis verið haldið fram á opinberum vettvangi að eigendur gamalla húsa í miðborg Reykjavíkur láti þau standa auð og drabbast niður til þess að niðurrif þeirra verði heimilað. Nú síðast mátti sjá þetta álit í yfirlýsingu frá Torfusamtökunum, og voru áform Festa um nýbyggingar á svokölluðum Hverfisgötureit meðal annars gerð þar að umtalsefni.
Í tilefni þessarar umræðu vilja Festar koma því á framfæri að félagið hefur um langa hríð átt í viðræðum við borgaryfirvöld um heildstæða uppbyggingu á reitnum og í sameiginlegri yfirlýsingu Festa og Skipulagssjóðs Reykjavíkurborgar frá febrúar 2007 kemur fram að gert er ráð fyrir endurskoðun á deiliskipulagi hans. Markmið þessa samstarfs er að finna lausn sem líkleg er til að sætta ólík sjónarmið um útlit og byggingarmagn í löngu tímabærri endurreisn miðborgarinnar. Hluti þeirra húsa sem fjarlægð verða voru keypt af Skipulagssjóði til niðurrifs og áformað er að nokkur önnur hús á reitnum verði jafnframt fjarlægð. Hagsmunir Festa af því að láta þau standa auð með tilheyrandi sjónmengun og slysahættu eru því engir.
Því miður hafa pólitískir sviptivindar síðustu missera í stjórnkerfi borgarinnar valdið ófyrirséðum töfum í viðræðum Festa og borgaryfirvalda. Af þeim ástæðum hefur skapast óþægilegt millibilsástand sem vonandi mun ljúka hið allra fyrsta. Festar taka undir þær áhyggjur af öryggismálum í mannlausum húsum sem komið hafa fram að undanförnu og undirstrika að af hálfu félagsins er eindreginn vilji til að fjarlægja húsin tafarlaust og ganga frá lóðum þeirra með viðunandi hætti þar til byggingarframkvæmdir geta hafist. Samkvæmt gildandi verklagsreglum borgaryfirvalda fæst hins vegar ekki heimild til niðurrifs fyrr en skipulagsráð hefur samþykkt teikningar af því sem byggt verður í staðinn.
Festar óskuðu fyrr í vikunni eftir fundi með slökkviliðsstjóra um öryggismál í þeim húsum sem nú bíða niðurrifs. Að tilmælum hans hafa Festar tekið ákvörðun um að loka þeim eins vel og auðið er. Á það er hins vegar bent að aldrei er hægt að útiloka innbrot í auð hús né heldur hugsanlega íkveikju eða önnur skemmdarverk í þeim. Vel lokað hús varnar fólki vissulega inngöngu en það getur líka lokað fólk inni ef neyðarástand skapast. Kyrfileg lokun húsanna getur því orðið mikil slysagildra, bæði fyrir hugsanlegt hústökufólk og t.d. slökkviliðsmenn sem þar þyrftu að athafna sig. Þess vegna láta Festar í ljós von um að fá sem allra fyrst heimild til að fjarlægja þau hús sem borgaryfirvöld hafa þegar tekið ákvörðun um að verði rifin. Einungis þannig verður yfirvofandi hættu á frekari óhöppum eytt auk þess sem ásýnd svæðisins yrði viðunandi þar til nýframkvæmdir geta hafist.




































