Lögreglustjóri á Suðurnesjum sagði upp

Jóhann R. Benediktsson.
Jóhann R. Benediktsson. Kristinn Ingvarsson

Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, hefur sagt upp störfum.  Á fréttavefnum Víkurfréttir segir að Jóhann hafi sagt upp í mótmælaskyni við þá ráðstöfun að skipta embætti lögreglustjórans upp, þar sem lögregla yrði sérstök eining undir dómsmálaráðuneyti, og tollverðir færu undir fjármálaráðuneyti og öryggisverðir undir samgönguráðuneyti.

Á vefnum segir að sagt hafi verið frá uppsögn Jóhanns á fjölmennum fundi með Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra, um þjóðmálaumræðu sem Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis stóð að í samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum í gærkvöldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert