Tekinn tvisvar sama kvöldið

Sami maðurinn hefur verið stöðvaður 5 sinnum fyrir lyfjaakstur og …
Sami maðurinn hefur verið stöðvaður 5 sinnum fyrir lyfjaakstur og einu sinni fyrir að aka undir áhrifum áfengis frá áramótum. mbl.is/

Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði ungan mann fyrir ölvunarakstur um klukkan þrjú í nótt en um kvöldmatarleytið hafði þessi sami maður verið kærður fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Að sögn lögreglunnar hefur maðurinn verið tekinn 5 sinnum fyrir lyfjaakstur frá áramótum.

Ástæðan fyrir því að maðurinn hefur enn ekki verið sviptur ökuréttindum mun vera sú að mál hans er enn á leið í gegnum dómskerfið og það tekur einnig tíma að rannsaka blóðsýni og önnur sönnunargögn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert