Fimm árekstrar á tveimur tímum

Mjög mikil hálka er á Akureyri og vegfarendur beðnir að …
Mjög mikil hálka er á Akureyri og vegfarendur beðnir að gæta að sér. mbl.is/Rax

Mjög mikil hálka er á götum Akureyrar þessa stundina og á tveimur klukkustundum hafa orðið fimm umferðaróhöpp og árekstrar þar. Varðstjóri lögreglunnar sagði að það væri launhált og menn þyrftu að hægja á sér. Allir fyrir utan einn voru þetta minniháttar pústrar.

Alvarlegastur var árekstur fólksbíls og jeppa á mótum Strandgötu og Glerárgötu í dag. Farþegi sem sat afturí fólksbílnum slasaðist lítilsháttar. Fólksbíllinn er talinn ónýtur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert