Græn skilaboð flokksstjórnar

Áhersla lögð á vernd náttúrusvæða.
Áhersla lögð á vernd náttúrusvæða. mbl.is/G. Rúnar

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar sendi frá sér ályktun þar sem ríkisstjórnin er hvött til að vinna að atvinnuuppbyggingu sem byggist á þekkingu, hátækni og virðingu við sjónarmið náttúru- og umhverfisverndar. 

Orðrétt segir í ályktuninni: „Fundurinn leggur áherslu á að meðan beðið er niðurstöðu rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða verði ekki farið inn á óröskuð svæði og varar eindregið við því að virkjana- og stóriðjuframkvæmdir hefjist áður en gengið hefur verið frá orkuöflun, línulögnum, losunarheimildum o.fl.
 
Flokksstjórnarfundurinn telur að við ákvörðun um meiriháttar framkvæmdir í atvinnumálum með tilstuðlan og atbeina stjórnvalda og  almannafyrirtækja verði að taka mið af nútímalegum atvinnuháttum, byggðasjónarmiðum og umhverfisþáttum, þar á meðal skuldbindingum Íslendinga í loftslagsmálum og fyrirheitum um vernd ósnortinna náttúrusvæða. “


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert